Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 17
íslendingarnir skoða finnsku rúlluvafningsvélina hjá Nkh-Keskus-fyrírtœkinu.
keisaratímanns, innréttingar og hús-
búnaður. Sérkennilegt var að sjá
þama íburðarmikil málverk af rúss-
neskum zörum og furstum og rúss-
neskum bændabýlum frá fyrri
tímum í þungum, giltum römmum
sem þöktu alla veggi.
Finnsk rúlluvafningsvél sem
sparar mann og traktor.
Daginn eftir héldum við norður í
land til borgar sem heitir Jyváskylá.
Við höfðum til umráða ágætan lítinn
Mersedes Benz hópferðabíl með
einkabílstjóra. Aftast í bílnum var
kringlótt borð sem hægt var að
vinna við. Á leiðinni heimsóttum
við fyrirtæki sem heitir Nkh-Keskus
Oy. Þetta fyrirtæki framleiðir og
selur vafningsvélar fyrir heyrúllur.
Pökkunarvélin er fest aftan í rúllu-
pressu þannig að það má nota sömu
dráttarvélina fyrir bæði tækin í einu
og þá að sjálfsögðu einn ekil.
Sölustjóri fyrirtækisins er kona,
Petra Korhonen að nafni, mesta
dugnaðarkona. Hún skýrði fyrir
okkur starfsemina í fyrirtækinu sem
þróar og selur vörur af ýmsu tagi.
Þar vinna ekki nema fimm starfs-
menn. Samt sem áður hefur fyrir-
tækið í þjónustu sinni tvö sölunet
um landið og fimmtíu sölumenn.
Þeir hafa sett á markað fimm vöru-
tegundir á síðustu þremur árum, og
selt heima og erlendis. Kváðust þeir
hafa selt 120 rúllupökkunarvélar í
Finnlandi síðastliðið ár og eitthvað
svipað til útlanda. Umsetningin hjá
þessu fyrirtæki er um 20 millj.
marka. Þeir sögðust leggja áherslu á
að hagræða og útbúa kerfi sem
sparar tíma, peninga og starfsfólk.
Þessi finnska rúlluvafningsvél er
afskaplega einföld og virtist mjög
áhugaverð. íslensku bændumir sem
voru í förinni voru hrifnir af henni
og töldu sig geta sparað vélar og
mannskap með því að nota hana.
Við kvöddum síðan Petru og
hennar föruneyti, það voru tveir
karlmenn, aðstoðarmenn hennar.
Annar þeirra var jafnframt bóndi
sem hafði búið í Wisconsin í
Ameríku og talaði ensku með
sterkum amerískum hreim, mjög
skemmtilegur maður, hinn maðurinn
er verkfræðingur að mennt. Þessir
menn leystu greiðlega úr spum-
ingum okkar.
I ferðinni voru, auk Þorgeirs
Amar Elíassonar, forstjóra Bújöfurs
hf., Finnur Haraldsson, bóndi á
Háafelli í Dölum, Kristján Sigfús-
son, bóndi, Húnsstöðum, A.-Hún.,
Bessi Vésteinsson, bóndi og vél-
smiður Hofstaðaseli, Skagafirði,
Leifur Guðmundsson, bóndi í Klauf
í Eyjafirði, Sveinn Jónsson, bóndi
og byggingameistari í Kálfsskinni á
Árskógsströnd og sá sem þessar
línur ritar.
Finnland er mjög flatlent, að
mestu skógivaxið. Eina samfellda
hálendissvæðið er í norðvesturhluta
landsins. Stórir mýraflákar eru um
miðbikið. Vegir eru mjög góðir;
þama skiptust á akrar og skógar á
báðar hendur. Þetta var algjörlega
tilbreytingalaust landslag; það var
ekkert útsýni nema í næsta skógar-
jaðar og hér og þar voru bændabýli
og vötn á stangli. Húsin voru yfir-
leitt úr timbri og margt um gamla
niðumídda kofa.
Fréttir frá Finnlandi herma að
margir bændur þar horfi með kvíða
til framtíðarinnar, því líklegt er að
Finnar gangi í Evrópusambandið.
Finnskir bændur eru yfirleitt and-
vígir því, einkum þeir sem búa í
Suður-Finnlandi þar sem kornrækt
er mest. Þar er ræktað bæði hveitú
bygg, hafrar og rúgur, og gangi
Finnar í Evrópusambandið, fá þessir
kombændur að sögn lítinn stuðning.
Hins vegar fengju bændur sem búa í
harðbýlli sveitum og á minni jörðum
með óhagkvæmara búskaparlag
norðar í landinu meiri styrki sam-
kvæmt þessum reglum, þannig að
þeir bændur eru kannski ekki ýkja
óánægðir.
Sextíu og fimm prósent Finnlands
er skógi vaxið og sex til átta prósent
landsins er ræktað. í landinu eru
fimmtíu og fimm þúsund vötn sem
eru stærri en einn hektari. Trjáteg-
undir eru þarna aðallega greni og
fura og geysimikið af birki með hvít-
um berki. Þessi hvíti börkur finnsku
bjarkarinnar er nafnkunnur í finnsk-
um bókmenntum. í Sögum her-
læknisins eftir Zakarias Topelius er
þess getið að í hungursneyðum í
Finnlandi fyrr á tíð hafi menn satt
sig á barkarbrauði sem búið var til
úr möluðum berki. Næframir voru
líka notaðir í skó. Þessi birkitré eru
há, allt að því tuttugu metrar á hæð.
Heimsókn í Valmet-
verksmiðjuna.
Við héldum síðan áfram til borgar
sem heitir Jyvaskylá. Það er borg
með sjötíu og fimm þúsund fbúa um
það bil tvö hundruð og fimmtíu
kílómetra norðan við Helsinki.
Byggingar eru þar nýtískulegar; við
bjuggum á hóteli sem heitir Alex-
andra. í smábæ skammt þar frá sem
heitir Suolahti eru Valmet dráttar-
vélaverksmiðjumar. Þrjú hundruð
starfsmenn vinna í þeim. Fyrirtækið
framleiðir margt fleira, t.d. papp-
írsvélar; það er eitt hið stærsta í
heiminum á því sviði og er þar í
19*94 - FREYR 697