Freyr - 01.10.1994, Qupperneq 19
Hannu Niskanen sýnir Bessa Vésteins-
syni í Hofsstaðaseli og Sveini Jónssyni í
Syðra-Kálfsskinni Valmet-hreyfil.
finnskir verkfræðiskólar væru
sniðnir eftir þýskri fyrirmynd og
hélt því svolítið drjúgur fram að
finnskir verkfræðingaskólar væru
jafnvel betri en þeir sænsku sem
væru sniðnir eftir enskri fyrirmynd,
að henni ólastaðri. Hann taldi að
finnskar iðnaðarvörur væru yfirleitt
vandaðar. Það er áreiðanlega engar
ýkjur, því þær hafa gott orð á sér.
Valmet dráttarvélin er talin afar
vönduð að gæðum og frágangi og
þeir voru með ýmsar nýjungar, t.d.
rofa aftan á vélinni til að slökkva á
mótomum t.d. ef slys bæri að hönd-
um.
Finnskir bœndur áhrifamiklir
í landsstjórninni.
Niskanen sagði okkur frá því að
fjögur hundruð þúsund manns hefðu
orðið að flýja frá þeim landssvæðum
á Karelasvæðinu sem Rússar tóku af
Finnum í seinni heimstyrjöldinni, og
þessum fjögur hundruð þúsund
sálum varð að finna húsnæði og
vinnu. Og ekki nóg með það: Þegar
ungu hermennimir komu heim úr
stíðinu, varð sjá þeim fyrir jarðnæði
og þá greip ríkisstjórnin til þess ráðs
að skipta stórum jarðeignum niður á
milli þeirra til þess að þeir gætu séð
sér farborða. Þetta olli því að of-
fjölgun varð á bændum í Finnlandi
og jafnframt offramleiðsla á bú-
vörum og fátækt í stéttinni að sögn
Niskanens.
Dráttan'élarnar eru smíðaðar áfœriböndum.
Bændur urðu mjög sterkt pólitískt
afl í Finnlandi. Þeir stofnuðu
Miðflokkinn sem hefur lengi haft
sterka oddastöðu í finnskum stjórn-
málunr. Ef Finnar ganga í Evrópu-
sambandið, minnka pólítisk áhrif
finnsku bændastéttarinnar og það
kemur niður á kjörum þeirra, sagði
Niskanen.
Hannu Niskanen taldi að hinn nýi
forseti Finnlands væri afar öflugur
maður; sá er sósialisti og vill að
Finnar gangi í Evrópusambandið og
Niskanen taldi ekki nokkum vafa á
svo yrði. Hann sagði að þeir vildu fá
erlent fjármagn inn í landið því að
lítið fjármagn lægi þar á lausu.
Atvinnuleysi í Finnlandi jókst úr 4%
í 18% 1993.
Daginn eftir héldum við áfram í
rútunni með bílstjóranum sem átti
reyndar sjálfur fyrirtækið sem gerir
út þennan og fleiri slíka langferða-
bíla. Þetta var þægilegur maður og
velviljaður og gerði það sem hann
gat til að skýra fyrir okkur það sem
fyrir augum bar.
Við ókum eftir góðum þjóðvegi
sem skyndilega breikkaði á einum
stað, kannski fimm eða sexfalt, og
þá vorum við komnir á flugbraut,
s.k. herflugbraut, sem bílstjórinn
sagði að væru víða eru í Finnlandi.
Við fórum oft fram hjá sögun-
armyllum. Við þær voru háir hlaðar
af trjábolum og drumbum og svo
aðrir hlaðar af söguðu timbri. Við
héldum til staðar sem heitir Wiro-
makki; það er gríðarstórt íþrótta-
svæði þar sem okkur var sagt að
kæmu fimm miljónir gesta á ári. Þar
eru tennisvellir, golfvellir, aðstaða
til skíðaiðkana og yfirleitt mjög góð
aðstaða til íþróttaiðkana og útivistar.
Til dæmis um það þjálfar rússneska
landsliðið ísknattleik þar að stað-
aldri.
Verksmiðjuframleidd
timburhús.
Þar skoðuðum við orlofshús frá
Rantasalmi-fyrirtækinu, en Bújöfur
flytur inn hús frá þeim.
Á flugvellinum í Helsinki hittum
við mann sem heitir Úrpú Salminen,
viðfeldinn mann á miðjum aldri,
sem er forstjóri fyrir húsaverksmiðju
Rantasalmi sem er hluti af fyrirtæk-
inu Mátse Sárla Oy en það er eitt af
sex stærstu fyrirtækjum í Finnlandi.
Þeir vinna úr fimmtán þúsund
rúmmetrum af timbri á ári og flytja
fullbúin hús til Svíþjóðar, Japans,
Þýskalands og Frakklands. Þetta er
samvinnufyrirtæki 130 þúsund
skógareiganda en finnskir skógar
eru í einkaeign. Fyrirtækið rekur
eina stærstu timburhúsaverksmiðju í
Norður-Evrópu. Þeir framleiða
heilsárshús og orlofshús og sérstakar
tegundir af baðstofum (sánum) til að
hafa inni í húsum og selja mikið af
þeim til Mið-Evrópu. Þessi verk-
smiðja flytur hús til íslands og er
19'94 - FREYR 699