Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1994, Síða 21

Freyr - 01.10.1994, Síða 21
Kjötumboðið hf., nýtt markaðs- og sölufyrirtœki Horft til framtfðar með Kjötumboðinu hf. Kjötumboðið hf. er nýtt fyrirtœki, reist á gömlum grunni. Fyrirtœkið hyggst haga rekstri sínum þannig að unnt verði að sinna öllum óskum viðskiptavinarins í greininni. Að þessu ber að stefna ef sinna á vel kjötmarkaði hér á landi þannig að neytendur velji innlenda framleiðslu í stað erlendrar og að íslenskir bœndur geti bœtt sinn hag. Kjötumboðið hf. Kjötumboðið hf. var stofnað 25. maí 1993 til að annast sölu, dreif- ingu og vinnslu búfjárafurða fyrir sláturleyfishafa. Kjötumboðið hf. annast einnig markaðssetningu kjöt- vara á innlendum og erlendum mörkuðum. Þessu til viðbótar selur Kjötumboðið hf. kost í skip og rekur dúnhreinsistöð. Hluthafar í félaginu eru 17 slátur- leyfishafar. Samkvæmt samþykktum er félagið opið fyrir svínabændum, í beinum viðskiptum, og búgreina- samböndum sem vilja gerast nýir hluthafar. Flestir hluthafa ráða yfir smáum hlut en fjórir aðilar skera sig nokkuð úr: Kf. Vestur-Húnvetninga með 21.5% hlutafjár, Afurðastöðin hf. með 12.4%, Kf. Eyfirðinga með 10.5% og Kf. Þingeyinga með 9.6% hlut. I stjóm fyrirtækisins eru: Öm Bergsson bóndi Hofi, Öræfum, Svavar Jensson bóndi Hrappsstöð- um, Dalabyggð, Þórður Pálsson bóndi og framkvæmdastjóri, Ref- stað, Vopnafirði, Jón Alfreðsson kfstj. KSH Hólmavík og Þorgeir Hlöðversson kfstj. KÞ Húsavík sem jafnframt er stjómarformaður. Kjötumboðið tók yfir rekstur kjöt- dreifingar og vinnslu Goða hf. 18. október síðastliðinn og leigir hús- næði og vélar af Goða. Starfs- mannafjöldi Kjötumboðsins hf. er um 70 manns. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Helgi Óskar Óskars- son rekstrarhagfræðingur. Útflutningur á umsýslukjöti Kjötumboðið hf. flytur út megnið af umsýslukjöti og kjöt innan 100- Helgi Óskar Óskarsson, framkvœmda- stjóri. 105% greiðslumarks í samstarfi við alla sláturleyfishafa í landinu. I ágústbyrjun var heildarútflutningur af framleiðslu 1993 hjá Kjötumboð- inu orðinn 964 tonn sem var yfir 80% af öllum kjötútflutningi í land- inu. Þar af er umsýslukjöt um 600 tonn. Ýmislegt hefur verið gert til að ná hærra verði og má þar nefna sölu á kældu kjöti beint til neytenda í Evrópu. Slíkur útflutningur er háður viðurkenningu Evrópusambandsins og hafa nú tvö íslensk sláturhús viðurkenningu til að selja beint inn á markaði sambandsins. I síðustu slát- urtíð voru seld um 12 tonn af kældu kjöti til Danmerkur og í haust verður þessum útflutningi haldið áfram og undirbúningur sölu á kældu kjöti til Þýskalands er langt kominn. Aukin áhersla hefur verið á útflutning á stykkjuðu og pökkuðu kjöti sem gefur betra verð en heilir Úlfar Reynisson, skrifstofustjóri. skrokkar. Tilraunir eru í gangi með útflutning á hangikjöti og fleiri iðnaðarvörum. Utflutningur á sviðum og innmat hefur verið talsverður og hrossa- kjötsútflutningur er í stöðugri sókn og hefur Kjötumboðið gert nýjan samning við japanskan hrossa- kjötskaupanda um kaup á fersku hrossakjoti fyrir mun hærra verð en áður. A síðastliðnu ári kannaði Kjötumboðið útflutningsmöguleika á húðum og innmat úr nautgripum, svínum og hrossum. Tilraunasend- ingar hafa lofað góðu og eru kaup- endur ánægðir með gæðin á vörunum. Framtíð kjötútflutnings frg íslandi íslenska dilkakjötið er alls staðar viðurkennt sem gæðavara. Vænt- ingar um framtíðina liggja í vist- 19*94 - FREYR 701

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.