Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1994, Page 26

Freyr - 01.10.1994, Page 26
Auðhumla ’94 Mœttum við fá meira af slíku Landbúnaðarsýningin Auðhumla ’94 sem haldin var í sumar á Hrafnagili í Eyjafirði var ánægju- legur viðburður í þjóðlífinu og styrkur íslenskum landbúnaði. Það var vel til fallið að halda þessa sýningu í Eyjafirði, hinu blómlega landbúnaðarhéraði. Sýningarstaður- inn, Hrafnagil, sögufrægt höfuðból er vel í sveit sett til slíkra viðburða. Staðurinn er í miðju héraði með góðbýlin allt um kring og Akureyr- arkaupstað á næsta leiti. Fjölbreytt dagskrá hófst laug- ardaginn 20. ágúst með kynningu Péturs Helgasonar, formanns Bún- aðarsambands Eyjafjarðar og söng Samkórs Eyjafjarðarsveitar undir stjóm Þórdísar Karlsdóttur. Heiðurs- gestur sýningarinnar, Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri flutti ávarp. Haukur Halldórsson formað- ur Stéttarsambands bænda flutti ræðu, Baldvin Kr. Baldvinsson bóndi í Torfunesi í Kinn söng ein- söng við undirleik Juliet Faulkner. Þá opnaði Halldór Blöndal landbún- aðarráðherra sýninguna með ræðu og séra Pétur Þórarinsson í Laufási Pétur Helgason form. Hsb. Eyjafjarðar kynnti sýninguna. Freysmyndir. Samkór Eyjafjaröarsveitar söng undir stjórn Þórdísar Karlsdóttur flutti hugvekju; loks söng Samkór Eyjafjarðarsveitar á ný. Gestir dreifðust nú unr sali og torg því sýningin var bæði úti og innandyra. A útisvæði sýndu vélasalar fjöl- breytt úrval nýjustu búvéla og tækja, þjónustufyrirtæki og afurðasölur kynntu vörur sínar og þjónustu, dráttarvélar og bflar frá ýmsum tímum vélaaldar stóðu meðfram gangstígum. A svæði milli húsa Hrafna- gilsskóla hafði verið skipulagt torg, myndað af smáhýsum úr torfi og Sýndir góÖhestar. Heiðursgestur sýningarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri. 706 FREYR- 19'94

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.