Freyr - 01.10.1994, Blaðsíða 27
Rögnvaldur Ólafsson, hóndi í Flugumýrarhvammi, Magniís Ólafsson, hóndi á
Sveinsstöðum, og Jón Viðar Jórimundsson ráðunautur rœða við Jón Steinar Jónsson,
sölustjóra Alfa Laval.
Islensku hundarnir Móra og Lappi voru
þarna mættir ásamt húshónda sínum,
Birni Pálssyni, Flögu í Hörgárdal.
timbri. Þar fór fram veitingasala og
kynning.
Búfjársýning var þarna á vegum
Búnaðarsambands Eyjafjarðar og
fiskeldisstöðvar kynntu starfsemi
sína. í jaðri sýningarsvæðisins voru
gróðurreitir með nytjajurtum. Létti-
kerra Sveins í Kálfsskinni með
tveim hestum fyrir ók gestum um
svæðið.
Norðlensku góðhestamir Hrímnir
frá Hrafnagili og Þorri frá Hösk-
uldssöðum voru sýndir og hesta-
mannafélögin Léttir og Funi og
hrossaræktarbú í Eyjafirði sýndu
gæðinga.
Inni í íþróttasal Hrafnagilsskóla
voru sýningarbásar þar sem fjöldi
Mjólkurhílar frá ýmsum tímahilum voru til sýnis.
fyrirtækja kynnti þjónustu sfna, og í
stofum í kjallara hússins var sýndur
handiðnaður, gamall og nýr. í
kennslustofum á 2. hæð gaf að líta
myndlistarsýningu norðlenskra lista-
manna. Tónlistin skipaði veglegan
sess á Auðhumlu ’94. Þar sungu
norðlenskir kórar, einsöngvarar og
kvartett, hljóðfærasláttur margs
konar hljómaði og dansflokkur
sýndi þjóðdansa. Þá voru flutt
fræðandi erindi um málefni sem efst
eru á baugi í íslenskum landbúnaði.
Margt fleira var um hönd haft á
„Auðhumlu ’94 sem ekki er kostur
að rekja hér, en víst er um það að
þetta var fyrirtaks landbúnaðar-
sýning og góður vitnisburður um
menningu og þrótt norðlenskra
bænda. Hún var rismikil, fræðandi
og skemmtileg og öllum þeim til
sóma sem að henni stóðu. Mættum
við fá meira af slíku. T T „
Úr búvéladeildinni.
19*94 - FREYR 707