Freyr - 01.10.1994, Side 28
Búgreinamál hinna
bœndasamtaka
Hugmynd um nýtt skipulag
Björn S. Stefánsson
Landbúnaður er margbreytilegur.
Því er von að þeir sem hann stunda
vilji styðjast við margbreytilegan fé-
lagsskap. Þrátt fyrir sameiningu
Búnaðarfélags íslands og Stéttar-
sambands bænda verður svo enn,
enda eiga 11 búgreinafélög aðild að
þingi hins nýja félagsskapar, hvert
með sinn fulltrúa. Búgreinafélög
þessi eru til vitnis um að ýmsum
hefur þótt líklegra til árangurs að
þeir stæðu saman sem skyldasta eiga
hagsmuni og áhugamál. Skiptar
skoðanir eru meðal bænda um það
hversu miklum árangri menn ná
með þessu skipulagi. Sumum þykir
gæta sundrungar sem veiki heildina.
Hér skal ekki fleira sagt um þann
ágreining.
Meðan ég hlýddi á umræður á
aðalfundi Stéttarsambands bænda og
á Búnaðarþingi í ágúst síðastliðnum
fannst mér sem brotalamir gætu orð-
ið í skipulagi hinna nýju samtaka.
Ég fékk þá hugmynd um annað
skipulag, sem sýnist geta breytt for-
sendum fyrir starfi félaga bænda,
bæði þeirra sem helga sig einni bú-
grein og samtaka sem ná til alls
landbúnaðar, og nú skal lýst.
Búnaðarfélögin, hvert í sinni sveit,
gefi félagsmönnum kost á að marka
sig í búgreinaskorir, eina eða fleiri.
Hver skor búnaðarfélags getur valið
búgreinarráð sem starfar á vegum
félagsins. Sömuleiðis getur hver
skor búnaðarsambands valið menn í
búgreinarráð sem starfar á vegum
sambandsins. Skorin í heild, fyrir
landið allt, skal velja menn í bú-
greinarráð.
Með skoraraðild kemst maður á
kjörskrá við kosningu búgreinarráðs.
Þótt bóndi sé einn í búgrein í bún-
aðarfélagi sínu eða búnaðarsam-
bandi og því ekki ástæða til að koma
á búgreinarráði í sveitinni eða
héraðinu, má haga kosningu í bú-
greinarráð landsins svo, að hann geti
neytt atkvæðisréttar við hana.
Búgreinarráðin móta vitaskuld
verkefni sín eftir ástæðum hvers og
eins. Heppilegt sýnist að flétta sam-
an búgreinarráð og stjóm búnað-
arfélags, búnaðarsambands og hinna
nýju landssamtaka. Það getur gerzt
með því að í búgreinarráði sitji
stjómarmaður.
Þá er spurning hvort slík búgrein-
arráð, sem standa á sama grunni og
búnaðarfélögin og búnaðarsambönd-
in, fullnægi þeim þörfum sem starf-
semi búgreinafélaga hefur verið ætl-
að að sinna.
Skipulagsmál félagsskapar geta
verið lengi í deiglunni. Á aðalfundi
Stéttarsambands bænda á Laugar-
vatni haustið 1985 kom upp sú hug-
mynd á tveggja manna tali að ég
yrði fenginn til að meta kosti sam-
einingar Stéttarsambands bænda og
Athugasemd
í skýrslu um störf Stéttarsambands
bænda 1993-1994 sem birt er í 18.
tbl. Freys 1994, svonefndu Stéttar-
sambandsblaði, er m.a. fjallað um
rekstur Lífeyrissjóðs bænda. Þar er
því haldið fram að flutningur sjóðs-
ins úr Bændahöllinni í Sambands-
húsið á Kirkjusandi hafi verið fram-
kvæmdur „án þess að samþykki
sjóðsstjórnar lægi fyrir" (bls. 638).
Vegna þessara ummæla vil ég
biðja Frey að birta eftirfarandi
klausu úr fundargerð 219. fundar
stjómar Lífeyrissjóðs bænda, sem
haldinn var 12. ágúst 1993. Á þeim
fundi var tillaga um samstarf sjóðs-
Búnaðarfélags íslands. Stjórn Bún-
aðarfélagsins fór þess á leit við mig
þá um veturinn. Mér þótti vænt um
að fá slíkt verkefni, ekki sízt fyrir
það að ekki var spurt áður hver
skoðun mín væri fyrirfram á málinu.
Hún var reyndar sú að tvískiptingin,
sem þá hafði staðið í fjörutíu ár,
væri eðlileg. Við nánari athugun
komst ég að annarri niðurstöðu, eins
og ég gerði grein fyrir á „litla Bún-
aðarþingi" þá um veturinn og síðan í
skýrslu til Búnaðarþings og í Bún-
aðarriti. Mér þótti það takast lakast í
greinargerð minni að afmarka vett-
vang félagsskapar sem helgaði sig
landbúnaði almennt, eins og bún-
aðarfélög sveitanna og búnaðarsam-
böndin, annars vegar og búgreina-
félaganna hins vegar. Framangreind
hugmynd þykir mér miklu betri.
Hún er því lögð hér fram til athug-
unar.
ins við Samvinnulífeyrissjóðinn,
sem auðvitað fól í sér flutning starf-
seminnar úr Bændahöllinni í Sam-
bandshúsið, „tekin til umræðu og
afgreiðslu", eins og segir í fundar-
gerðinni.
„Stjómarmenn voru sammála um
að þetta væri hagkvæmur kostur og
var ákveðið að ganga til samstarfs
við Samvinnulífeyrissjóðinn og
skyldi framkvæmdastjóri kynna
stjómarmönnum drög að samstarfs-
samningi við fyrsta tækifæri."
Benedikt Jónsson,
framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs bænda.
708 FREYR - 19*94