Freyr

Volume

Freyr - 01.10.1994, Page 28

Freyr - 01.10.1994, Page 28
Búgreinamál hinna bœndasamtaka Hugmynd um nýtt skipulag Björn S. Stefánsson Landbúnaður er margbreytilegur. Því er von að þeir sem hann stunda vilji styðjast við margbreytilegan fé- lagsskap. Þrátt fyrir sameiningu Búnaðarfélags íslands og Stéttar- sambands bænda verður svo enn, enda eiga 11 búgreinafélög aðild að þingi hins nýja félagsskapar, hvert með sinn fulltrúa. Búgreinafélög þessi eru til vitnis um að ýmsum hefur þótt líklegra til árangurs að þeir stæðu saman sem skyldasta eiga hagsmuni og áhugamál. Skiptar skoðanir eru meðal bænda um það hversu miklum árangri menn ná með þessu skipulagi. Sumum þykir gæta sundrungar sem veiki heildina. Hér skal ekki fleira sagt um þann ágreining. Meðan ég hlýddi á umræður á aðalfundi Stéttarsambands bænda og á Búnaðarþingi í ágúst síðastliðnum fannst mér sem brotalamir gætu orð- ið í skipulagi hinna nýju samtaka. Ég fékk þá hugmynd um annað skipulag, sem sýnist geta breytt for- sendum fyrir starfi félaga bænda, bæði þeirra sem helga sig einni bú- grein og samtaka sem ná til alls landbúnaðar, og nú skal lýst. Búnaðarfélögin, hvert í sinni sveit, gefi félagsmönnum kost á að marka sig í búgreinaskorir, eina eða fleiri. Hver skor búnaðarfélags getur valið búgreinarráð sem starfar á vegum félagsins. Sömuleiðis getur hver skor búnaðarsambands valið menn í búgreinarráð sem starfar á vegum sambandsins. Skorin í heild, fyrir landið allt, skal velja menn í bú- greinarráð. Með skoraraðild kemst maður á kjörskrá við kosningu búgreinarráðs. Þótt bóndi sé einn í búgrein í bún- aðarfélagi sínu eða búnaðarsam- bandi og því ekki ástæða til að koma á búgreinarráði í sveitinni eða héraðinu, má haga kosningu í bú- greinarráð landsins svo, að hann geti neytt atkvæðisréttar við hana. Búgreinarráðin móta vitaskuld verkefni sín eftir ástæðum hvers og eins. Heppilegt sýnist að flétta sam- an búgreinarráð og stjóm búnað- arfélags, búnaðarsambands og hinna nýju landssamtaka. Það getur gerzt með því að í búgreinarráði sitji stjómarmaður. Þá er spurning hvort slík búgrein- arráð, sem standa á sama grunni og búnaðarfélögin og búnaðarsambönd- in, fullnægi þeim þörfum sem starf- semi búgreinafélaga hefur verið ætl- að að sinna. Skipulagsmál félagsskapar geta verið lengi í deiglunni. Á aðalfundi Stéttarsambands bænda á Laugar- vatni haustið 1985 kom upp sú hug- mynd á tveggja manna tali að ég yrði fenginn til að meta kosti sam- einingar Stéttarsambands bænda og Athugasemd í skýrslu um störf Stéttarsambands bænda 1993-1994 sem birt er í 18. tbl. Freys 1994, svonefndu Stéttar- sambandsblaði, er m.a. fjallað um rekstur Lífeyrissjóðs bænda. Þar er því haldið fram að flutningur sjóðs- ins úr Bændahöllinni í Sambands- húsið á Kirkjusandi hafi verið fram- kvæmdur „án þess að samþykki sjóðsstjórnar lægi fyrir" (bls. 638). Vegna þessara ummæla vil ég biðja Frey að birta eftirfarandi klausu úr fundargerð 219. fundar stjómar Lífeyrissjóðs bænda, sem haldinn var 12. ágúst 1993. Á þeim fundi var tillaga um samstarf sjóðs- Búnaðarfélags íslands. Stjórn Bún- aðarfélagsins fór þess á leit við mig þá um veturinn. Mér þótti vænt um að fá slíkt verkefni, ekki sízt fyrir það að ekki var spurt áður hver skoðun mín væri fyrirfram á málinu. Hún var reyndar sú að tvískiptingin, sem þá hafði staðið í fjörutíu ár, væri eðlileg. Við nánari athugun komst ég að annarri niðurstöðu, eins og ég gerði grein fyrir á „litla Bún- aðarþingi" þá um veturinn og síðan í skýrslu til Búnaðarþings og í Bún- aðarriti. Mér þótti það takast lakast í greinargerð minni að afmarka vett- vang félagsskapar sem helgaði sig landbúnaði almennt, eins og bún- aðarfélög sveitanna og búnaðarsam- böndin, annars vegar og búgreina- félaganna hins vegar. Framangreind hugmynd þykir mér miklu betri. Hún er því lögð hér fram til athug- unar. ins við Samvinnulífeyrissjóðinn, sem auðvitað fól í sér flutning starf- seminnar úr Bændahöllinni í Sam- bandshúsið, „tekin til umræðu og afgreiðslu", eins og segir í fundar- gerðinni. „Stjómarmenn voru sammála um að þetta væri hagkvæmur kostur og var ákveðið að ganga til samstarfs við Samvinnulífeyrissjóðinn og skyldi framkvæmdastjóri kynna stjómarmönnum drög að samstarfs- samningi við fyrsta tækifæri." Benedikt Jónsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs bænda. 708 FREYR - 19*94

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.