Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.10.1994, Qupperneq 29

Freyr - 01.10.1994, Qupperneq 29
Haustverkin í heimilis- gróöurhúsinu Garðar R. Árnason Haustið er andstœða vorsins í gróðurhúsinu. Að vori er rœktandinn fullur eftirvœntingar og framkvœmdagleði, en að hausti leggst í þess stað oft drungi bœði yfir menn og plöntur. Gróðurhúsið er þá meira eða minna fullt af plöntum sem hafa lokið eða nær lokið hlutverki sínu og jafnvel gætu ýmsar óæskilegar lífverur tekið sér þar bólfestu, t.d. svejjpasjúkdómar og meindýr. Ymsa þá erfiðleika sem eru sam- fara haustinu í gróðurhúsinu má oft rekja beint til ræktandans sjálfs. I fyrsta lagi gæti ioftunin hafa verið of lítil er líða tók að hausti, þar sem oft er freistandi að loka gluggum tiltölulega snemma til að halda hitanum betur inni. Hættan sem því fylgir er að dögg myndist á plönt- unum þegar loftið kólnar að nóttu, sérstaklega ef loftraki er hár, en ýmsir sveppasjúkdómar (t.d. grá- sveppur) þrífst vel á döggvotum plöntum. Gæta þarf þess því að lofta nægilega mikið síðla sumars og skilja t.d. alltaf eftir um 5 cm rifu á gluggum að nóttu, þ.e. þegar vindur leyfir slíkt á annað borð. Það tekst hvort eð er ekki að halda daghitan- um að nóttu í óupphituðu gróður- húsi. Ef húsið er búið kyndingu er henni að sjálfsögðu beitt. Garðar R. Arnason. Reyna ber eftir því sem tök eru á að hafa ekki of þétt á plöntunum, til að lofthreyfingin um plöntumar verði ekki of treg. Oft mætti t.d. fjarlægja neðstu og elstu blöð plantnanna, en taka verður þau alveg inn við stofninn, því að stubbar sem skildir væru eftir eru kjömar inn- gönguleiðir fyrir sveppasjúkdóma. í stað þess að afblaða plöntumar, sem ætíð skilur eftir sig varhugaverð sár á stönglunum, kæmi einnig til greina að fjarlægja einstaka plöntur í heilu lagi. Gæta þarf þess að láta ekki visnuð blöð og ónýt aldin liggja á gólfinu sem kjörin gróðrastía fyrir ýmsa sveppasjúkdóma. Gott hrein- læti og snyrtimennska skilar sér ætíð. í öðru lagi dregur oft úr árverkni ræktandans er líða tekur á sumarið, þannig að hætta er á að ýmis meindýr fái gott næði til að koma sér fyrir og fjölga sér og uppgötvist ekki fyrr en of seint. Einnig af þessari ástæðu er mikilvægt að ekki sé of þétt á plöntunum. Hvort sem okkur líkar betur eða verr kemur ætíð að þeim degi að ræktunartímabilinu ljúki. Reynir þá oft á viljastyrkinn til að hreinsa út úr gróðurhúsinu og þrífa húsið. Dragist verkið á langinn fá sjúkdómar og meindýr gott tækifæri til að fjölga sér enn frekar, sem eykur hættuna á óþarfa erfiðleikum næsta vor. Frh. á bls. 715. Bœndaferð til írlands í lok nóvember Margar bændaferðir hafa verið famar í ár og allar tekist vel. Síðasta ferðin að þessu sinni verður farin til írlands. Sunnudaginn 27. nóvember verð- ur farið til Cork, sem er á Suður- írlandi og er þriðja stærsta borg írlands með um 140 þúsund íbúa. Famar verða 2 skoðunarferðir. Sú fyrri verður skoðunarferð um borg- ina Blamey, sem reyndar er aðeins rústir einar í dag. Þá verður farin dags ferð yfir á vesturströndina og m.a. verður komið við í Killamey og farið hinn svokallaði Kerry-hringur en það er mjög falleg leið. Komið verður heim úr írlands- ferðinni fimmtudaginn 1. desem- ber. Verð á mann er kr. 28.500. Innifalið: Flug og flugvallarskatt- ar, gisting í 2ja manna herbergjum og morgunverður, allur akstur á Ir- landi og fararstjóm. Hafið samband við Agnar eða Halldóru hjá Stéttarsambandi bænda í síma 91 -630300 ef þið óskið eftir að taka þátt f ferðinni. 19*94 - FREYR 709

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.