Freyr - 01.10.1994, Side 31
Hvað er vistvcenna en sœllegurfénaður í fögru umhverfi?
Þetta mundum við hafa fram yfir
þau tvö önnur lönd í Vestur Evrópu
sem framleiða kindakjöt umfram
þarfir heimamarkaðarins, en það er
Holland og írland. f báðum þessum
löndum er loftmengunin mun meiri
en hér og þá sérstaklega í Hollandi.
Við þurfum að keppa við Nýsjá-
lendinga og það verður vandi okkar
um ókomin ár.
Ef okkur tækist vel í Svíþjóð að
selja dilkakjötið út á vistvæna
stimpillinn, má gera ráð fyrir að Ný-
sjálendingar mundu einnig leggja
áherslu á að þeir séu með vistvæna
framleiðslu, engu síðri en íslend-
ingar. Þótt við þurfum ekki að selja
nema 1500 ti! 2000 tonn árlega, en
það er varla meira en 1% á því sem
Nýsjálendingar flytja út, þá mundu
þeir ekki sitja aðgerðarlausir og
horfa á ef við næðum umtalsverðum
árangri t.d. Svíþjóð.
Það er eina sem við getum gert er
að vanda okkar vöru, vera með
samkeppnisfært verð og tryggja
góða og trausta söluaðila í Svfþjóð
sem sjá sér hag í að markaðssetja
íslenska dilkakjötið á sem hag-
stæðustu verði og skapa ánægðan
neytendahóp sem jafnvel væri
reiðubúinn til að greiða eitthvað
lítilsháttar meira fyrir íslenskt dilka-
kjöt en nýsjálenskt. Þannig gætum
við myndað og mótað markaðinn en
við þurfum önnur vinnubrögð en
tíðkast hafa fram til þessa.
Zanotti-kæli- og frystibúnaður.
Einföld uppsetning á allra færi.
ALKUL
Höfðatúni 23, 210 Garðabær
Sími 91-657470
GSM 989-32636
19*94- FREYR 711