Freyr - 01.10.1994, Page 33
RITFRCGNIR
Skógrœktarritið 1994
Út er komið Skógræktarritið
1994, ársrit Skógræktarfélags Is-
lands. Skógræktarritið er helgað
málefnum skógræktar á Islandi og
birtist þar hvers kyns efni sem
tengist því málefni. Skógrækt er
annar aðalþátturinn í að klæða
landið gróðri, ásamt með land-
græðslu, og er Skógræktarritið eitt
öflugasta rit sem út er gefið hér á
landi í sókn og vöm fyrir því. Áður
fyrr, meðan málefni náttúruvemdar
náðu ekki eyrum almennings.eins og
nú, var Ársrit Skógræktarfélags ís-
lands, eins og það nefndist þá, á
undan öðrum að vekja athygli á
þeim málum. Þar var þá fremstur í
flokki þáverandi skógræktarstjóri,
Hákon Bjarnason. Bókin „Heimur á
heljarþröm", sem hann þýddi og út
kom um miðjan fimmta áratug ald-
arinnar, var tímamótarit í þessum
efnum hér á landi.
SKOGRÆKTAR
RITIÐ 1994 m
Ársrit Skógræktarlélags íslands
Hér verða ekki raktar einstakar
greinar í Skógræktarritinu 1994.
Þær spanna allt frá sögulegum fróð-
leik, skýrslum um félagsmál skóg-
ræktamanna og yfir í fræðilegar
greinar, svo sem um erfðafræði trjá-
tegunda. Sameiginlegt öllu efni í rit-
inu er að hvergi hefur verið til
sparað að gefa því aðlaðandi búning
með litmyndum og skýringarmynd-
um, þannig að vart getur fegurri
prentgrip.
Nú þegar orðið hefur vakning
með þjóðinni um að klæða landið
aftur gróðri, er hér á ferð rit sem er
örvandi fyrir alla þá sem vilja ganga
þeim málstað á hönd.
Skógræktarritið 1994 fæst hjá
Skógræktarfélagi íslands, Ránargötu
18, 101 Reykjavík, sími 91-18150,
símfax 91-627131 og kostar kr.
1.140-, auk sendingarkostnaðar, kr.
190.
M.E.
Horft til framtíðar með Kjötumboðinu hf.
Frli. afhls. 701.
verður lögð áhersla á stöðluð
vörugæði og vel samkeppnishæft
verð. Hvað varðar önnur mál má
nefna aukið gæðaeftirliti og öflugri
vöruþróun. Einnig er stefnt að þvf
að höfða meira til yngra fólks, sem
þegar allt kemur til alls eru neyt-
endur framtíðarinnar." segir Bjöm.
Hvernig sérð þú Kjötumboðið hf.
fyrir þér íframtíðinni?
„Ég sé það fyrir mér sem öflugt
og framsækið sölufyrirtæki sem
markaðssetur afurðir íslenskra
bænda í samkeppni við innflutt
matvæli," segir Björn að lokum.
Kristján Einarsson hóf störf sem
framleiðslustjóri hjá Kjötumboðinu
hf. í júní síðastliðnum. Kristján
útskrifaðist sem vélaverkfræðingur
frá Háskóla íslands 1988 og lauk
mastersnámi sem iðnaðarverkfræð-
ingur frá danska tækniháskólanum
(DTH) 1990. Síðustu ár hefur
Kristján starfað sem rekstrarráðgjafi
hjá Ráðgarði hf. og unnið þar m.a.
við uppbyggingu gæðakerfa.
Hverjar eru helstu áherslur hjá
þér sem nýr framleiðslustjóri Kjöt-
umhoðsins hf?
„Mín áhersla endurspeglast í þeirri
framtíðarsýn sem fyrirtækið hefur
sett sér. Meðal verkefna sem verið
er að vinna að í dag er verkefnið um
Hreina framleiðslutækni þar sem
farið er yfir efnisflæði í fyrirtækinu
og fundnar leiðir til að draga úr
sóun. Hér er ég að tala um sóun á
orku sem og á hráefni. Jafnframt er
verið að vinna að krafti í því að bæta
og staðla vörugæði og bæta skipu-
lagið til að vara sé til á réttum tíma
og í réttu magni.
Til viðbótar má nefna að unnið er
að uppbyggingu innra eftirlits í sam-
ræmi við reglugerð sem tekur gildi á
næsta ári. Lykilatriðið í vinnunni er
svokölluð áhættugreining. Áhættan
getur verið þrenns konar áhætta
vegna öryggis vöru, heilnæmis og
réttmætra viðskiptahátta. Þegar við
erum búin að finna áhættupunktana
þurfum við að ákveða hvernig við
ætlum að hafa stjóm á þeim. í
kringum þessa innanhússrannsókn
endurbætum við síðan gæðakerfi
okkar,“ segir Kristján.
Hvernig sérðu Kjötumboðið hf.
fyrirþér að nokkrum árum liðnum?
„Ég sé það fyrir mér sem fyrirtæki
sem býður viðskiptavinum sínum
sem og eigendum góða þjónustu
með lágmarks tilkostnaði. Til þess
að þetta sé unnt verðum við að sinna
þörfum viðskiptavina okkar þannig
að þeir sækist eftir að eiga viðskipti
við fyrirtækið. Við teljum að þetta
sé vel hægt með hagkvæmni stærð-
arinnar. Fyrirtækið og kjötvinnslur
eigendanna myndi öflugustu og
stærstu vinnslu á landinu sem vinni
sem ein heild þannig að hagsmunir
hvers og eins verði meiri því nánari
sem samvinnan er,“ segir Kristján
að lokum.
19'94-FREYR 713