Freyr - 01.10.1994, Qupperneq 35
anum á Hólum í samstarfi við
Embætti yfirdýralæknis.
Verkefni hennar er að vinna að
rannsóknum og kennslu í öllu því er
lýtur að heilbrigði hrossa, jafnframt
þvf sem hún vinnur að sérverkefnum
á vegum Embættis yfirdýralæknis.
Sigríður er stúdent frá ML árið
1984 og lauk dýralæknaprófi frá
Dýralæknaháskólanum í Oslo árið
1992. Eftir það vann hún almenn
dýralæknastörf í Þrændalögum í
Noregi í eitt ár. Frá þeim tíma hefur
hún búið á Laugarvatni og starfað
þar sjálfstætt sem dýralæknir.
Maður hennar er Ólafur Ingi Sig-
urgeirsson, líffræðingur.
Sigríður Bjamadóttir var ráðin
fóðurfræðingur hjá Tilraunastöðinni
á Möðruvöllum frá 1. september
1994. Verkefni hennar verða eink-
um á sviði nautgriparæktar.
Sigríður er stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1986, bú-
fræðingur frá Bændaskólanum á
Hólum árið 1987 og lauk prófi sem
búfræðikandidat (cand. agric.) frá
Landbúnaðarháskóla Noregs, NLH,
árið 1983, með búfjárrækt sem aðal-
grein.
Sigríður er frá Eyhildarholti í
Hegranesi. Maður hennar er Brynjar
Skúlason, skógfræðikandidat.
Brynjar Skúlason var ráðinn skóg-
ræktarráðunautur hjá Skógrækt rík-
isins frá 15. ágúst 1994, með aðsetur
á Búgarði á Akureyri. Verkefni hans
verða m.a. áætlanagerð og ráðgjöf
fyrir Skógrækt ríkisins á Norður-
landi og bændur sem rækta nytja-
skóg í þeim landshluta en einnig
fleiri störf er varða skógrækt.
Brynjar er búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hólum árið 1987
og stúdent frá Fjölbrautaskólanum á
Sauðárkróki árið 1989 og lauk
kandidatsprófi í skógfræði, (cand.
forst.) frá Landbúnaðarháskóla Nor-
egs, NLH, á Ási árið 1994.
Brynjar er frá Lynghóli í Skriðdal.
Kona hans er Sigríður Bjamadóttir,
búfræðikandidat, frá Eyhildarholti.
Guðrún Lára Pálmadóttir var ráðin
héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins
og Skógræktar ríkisins með aðsetri á
Húsavík frá 17. maí 1994.
Guðrún Lára er stúdent frá MK
árið 1987, búfræðingur frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri árið 1988 og
búfræðikandidat frá Búvísindadeild
skólans árið 1993. Skólaárið 1993-
'94 lagði hún stund á landnýtingar-
fræði við Utah State University í
Logan, Utah, USA.
Guðrún Lára ólst upp í Kópavogi.
Maður hennar er Böðvar Baldurs-
son, búfræðingur og bóndi í Ysta-
Hvammi í Aðaldal. í landi þeirrar
jarðar eiga þau sér íbúðarhús sem
nefnt er Heiðargarður.
Sigurborg Daðadóttir var ráðin
framkvæmdastjóri Nautastöðvar BI
á Hvanneyri frá 1. október 1994.
Sigurborg er stúdent frá VI árið
1979 og lauk dýralæknaprófi frá
Dýralæknaháskólanum á Hannover í
Þýskalandi árið 1985. Að loknu því
námi kynnti hún sér rekstur sæð-
ingarstöðva og fósturvísaflutninga í
Þýskalandi.
Sigurborg var framkvæmdastjóri
Einangrunarstöðvar ríkisins í Hrísey
á árunum 1986-1993, með tveggja
ára hléi, þegar hún starfaði sjálfstætt
sem dýralæknir í Eyjafirði. Síðast-
liðið ár hefur hún verið deildardýra-
læknir hjá Hollustuvemd ríkisins.
Haustverkin í heimilisgróöurhúsinu.
Frh. afbls. 709.
Byrjað er á því að tæma gróður-
húsið. Þegar búið er að fjarlægja
einærar plöntur (og illgresi), eru allir
pottar teknir og tæmdir (í græn-
metisgarðinn eða á safnhauginn) og
þvegnir vandlega. Hafi borið á
meindýrum undir lokin er gott að
fjarlægja einnig efsta lag (2-3 cm)
beðanna, því að þau gætu leynst þar
í. Að lokum er allt húsið þvegið hátt
og lágt með góðum bursta og græn-
sápu, ekki má gleyma borðum og
öðrum „föstum innréttingum" og
skrúbba vel inni í allar glufur.
Áður en vetur gengur í garð gæti í
stöku tilfellum verið æskilegt að
setja styrkingu undir mæni hússins,
þar sem hætta er á miklum snjó-
þyngslum. Slíkar stoðir ættu þó ekki
að standa beint á gólfi óupphitaðra
gróðurhúsa sökum hættu á frost-
lyftingu, betra væri að láta stoðimar
ná skáhalt niður á grunnmúrinn, þ.e.
tvær hvor á móti annarri hvorri til
sinnar hliðar.
Að lokum þarf að gæta þess að
hvergi liggi vatn í slöngum og rör-
um, best er að taka allar slöngur inn
yfir veturinn.
19'94-FREYR 715