Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1998, Síða 16

Freyr - 01.02.1998, Síða 16
Sveinn Aðalsteinsson, tilraunastjóri Garðyrkjuskóla ríkisins, í „hitabeltis"gróðurhúsi Garðyrkjuskólans. íhúsinu eru m.a. rœktaðir bananar og aðrar hitabeltisjurtir til nota í kennslu við skólann. hæfingin sífellt meiri og ætli menn að ná verulegum árangri verða þeir að einbeita sér að einni ræktun. Ekki geta t.d. allir ræktað tómata eða gúrkur hérlendis. Að vísu má til sanns vegar færa að Islendingar borði alltof lítið af grænmeti og því sé stærð markaðarins ekki þekkt. Það er satt og rétt en sú vissa ein og sér borgar ekki upp lán og annan kostnað garðyrkjubænda sem fá alltof lítið fyrir t.d. tómatana sína um mitt sumar þegar offramboðið nær hámarki. Það er því þörf á víð- tækri upplýsingaöflun um nýjar teg- undir og markaðshæfi þeirra, próf- unum við íslenskar aðstæður, sam- hæfðu markaðsátaki og dreifingu upplýsinga til framleiðenda, e.t.v. með hjálp alnetsins. Hér er lífsnauð- synlegt að „finna ekki upp hjólið“, heldur taka frekar mið af reynslu annarra og aðlaga íslenskum að- stæðum. MaRS ætti að stunda í ná- inni samvinnu við sölusamtök garð- yrkjubænda og aðra hagsmunaaðila. Garðyrkjuskólinn hefur sinnt þess- um þætti með ágætum undanfarna áratugi. Ræktun í vikri og öðrum innlendum ræktunarefnum Islenskir garðyrkjubændur hafa um langt árabil ræktað í vikri í gróður- húsum hérlendis. Garðyrkjuskólinn gekkst fyrir stóru tilraunaverkefni í lok níunda áratugarins og hefur birst fjöldi skýrslna um það efni. Verk- efninu er haldið áfram en nú er aðal- áherslan lögð á endurnýtingu vikurs og hinir ýmsu eðliseiginleikar vikurs skoðaðir. Lítil sem engin næring er í vikri og verður því að vökva með áburði líkt og gert er með steinull. Steinull er algengasta ræktunarefnið í ylrækt í Evrópu um þessar mundir en notkun hennar fylgja ýmis vanda- mál, einkum þegar ræktendur þurfa að losa sig við gamlar steinullar- mottur en þær hafa takmarkaða end- ingu. Hollendingar hafa sýnt notkun vikurs mikinn áhuga en steinullarúr- gangur er þar verulegt vandamál. Steinullin hefur þó sína sérstöku kosti, t.d. bindur hún ekki næringar- efni í sama mæli og vikur. Halda þarf þessum vikurtilraunum áfram og skoða t.d. jónrýmd (CEC) vikurs, llokkun hans og gæðastýringu, vatnsrýmd og vökvunarferli, heppi- legar umbúðir sem geta dregið úr vinnukostnaði, vandamál við endur- nýtingu, t.d. niðurbrot koma, og hvemig og hvort æskilegt sé að vinna að útflutningi vikurs til rækt- unar í stærri stíl en verið hefur. Hér, eins og víða annars staðar, er mikil- vægt að flytja ekki einungis út hrá- efni við þurfum einnig að hasla okk- ur völl með sérþekkingu okkar sem við seljum með hráefninu. Nokkrir garðyrkjubændur hafa reynt fyrir sér með ræktun í rauða- möl og náð ágætum árangri. Rauða- mölin er talin hafa minni bindigetu en vikur og er þar með auðveldari í 12-Freyr 1/98

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.