Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1998, Side 25

Freyr - 01.02.1998, Side 25
Val á silunganetum og notkun þeirra Silunganet sem veiðarfæri Silunganet eru það sem kallað eru „passíf‘ veiðarfæri. Veiðni þeirra byggist á því hve mikið fiskar hreyfa sig um svæðið sem netin eru á og fiskmagninu á viðkomandi stað. Veiðni netanna minnkar svo eftir því sem fleiri fiskar koma í þau. Helsti kostur netanna er sá að þau eru mjög veljandi veiðarfæri. Þau veiða aðal- lega fisk á þröngu stærðarbili allt eft- ir því hvaða möskvastærð er notuð. Algengast er að lagnet séu notuð í grunnum vötnum. Lagnet eru lögð með botni í dýpri vötnum eða stillt af á völdu dýpi með bólum. Veiðar með flotnetum er aðferð sem nota má á sviflægan fisk, svo sem murtu. Fiskar geta fest sig í netum með því að ganga í möskva eða ánetjast með öðrum hætti. Algengast er að fiskar sem ganga í möskva festi höf- uðið í möskvanum þannig að möskvi krækist aftur fyrir tálknbörð eða að þeir festist með netmöskvann um sig miðjan fyrir framan bakugga. Til þess þarf möskvastærð neta að vera hæfileg fyrir fiskstærðina. Þeg- ar fiskar festast á höfði teppist oft öndun svo fiskurinn kafnar. Algeng- ast er að þetta gerist þegar veiði- möskvi er of lítill fyrir fiskinn. Fisk- ar geta ánetjast í netum án þess að ganga í möskva t.d. með því að synda á net og vefja um sig netpok- anum eða þeir festa tennur, gadda eða kjaftvik í netinu (slíkt er algeng- ara hjá urriða en bleikju). Umhirda og lagning silunganeta Það sparar tíma við umvitjun að hafa nokkur net bundin saman í trossu. eftir Bjarna Jónsson fr-zlA. fiskifræðing. Hólaskóla Slíkar trossur geta verið allt frá þremur upp í fjörutíu net eftir að- stæðum. Ef net eru höfð ein og sér getur umvitjun tekið langan tíma. Okosturinn við að hafa mörg net bundin saman og þannig lögð á sama stað er að veiðivonin er lögð undir á einum eða fáum stöðum í stað þess að dreifa henni. Til þess að leysa þetta vandamál má nota svo- kallaða leitara. Þá eru eitt eða fleiri net lögð ein sér á nýja staði. Ef þessi leitamet veiða vel þá eru trossumar fluttar á þessa nýju staði. Bleikjur úr Vatnshlíðarvatni að hrygna. Góð leið til þess að losna við slý sem sest á silunganet er að taka netin jafnóðum upp í bátinn þegar vitjað er um. Við það hristist nokkuð úr netum. Net sem látin eru liggja lengi á sama stað, safna á sig slýi og gróðri og hætta að veiða. Gera má netin beint upp í bátinn eða í netakörfur. Kosturinn við neta- körfurnar er sá að þær eru auðveldar í flutningum, halda netum klámm og körfunum má auk þess snúa til þess að vinda ofan af snúnum netum. Körfurnar þurfa hins vegar að vera mjúkar og óslitnar, annars er hætta á því að netin festist í þeim og jafnvel rifni. Það er góð regla í skaplegu veðri að greiða úr flækjum og leysa lykkj- ur jafnóðum og net eru dregin. Flækjur og lykkjur verða því erfiðari að leysa því lengur sem þær em látn- ar afskiptalausar. Net em gjaman lögð undan vind- átt. Þannig er auðveldast að leggja (Mynd: Valgeir Bjamason) Freyr 1/98-21

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.