Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.1998, Side 39

Freyr - 01.02.1998, Side 39
Mynd 5. Rekstrarafkoma grœnmetisbúa. 1996 sem varð til þess að hagnaður þessa hóps varð lægstur á árinu. Þegar litið er nánar á skuldir grænmetisbænda á aldrinum 45-55 ára þá kemur í ljós að þær eru tæp- lega helmingi meiri en ársvelta þeirra er að jafnaði. Eiginfjárhlutfall búanna 60 er lágt eða að meðaltali 0,03 og er það helst tilkomið vegna þess hvað það reynist lágt hjá ald- urshópnum 45-55 ára eða -0,23 að jafnaði. Hagstæðast var það hjá elsta aldurshópnum eða 0,44 að jafnaði og skilur þar verulega á milli. Sömu sögu er að segja um veltufjárhlut- fallið en það reyndist lægst hjá ald- urshópnum 45-55 ára eða 0,52 að jafnaði samanborðið við 1,73 hjá bændum eldri en 55 ára. Telja má eðlilegt að elsti aldurs- hópurinn skuldi minnst þar sem sá hópur hefur náð að greiða niður sín- ar skuldir á langri starfsævi. Hins vegar vekja hinar miklu skuldir hjá aldurshópnum 45-55 ára nokkurn ugg en þær eru um 7,5 millj. kr. meiri að meðaltali en hjá aldurs- hópnum eldri en 55 ára. Astæða er fyrir þennan hóp að huga að sinni skuldastöðu og ekki síst að lækka sínar skammtímaskuldir sem nema um 5 millj. kr. aðjafnaði. Afkoma grænmetisbúa 1992-1996 Þau 12 bú sem notuð eru til að meta afkomuþróun á árunum 1992-1996 eru með í úrtaki 60 grænmetisbúa ársins 1996 sem rædd hafa verið hér að framan. Ef þau eru tekin út og skoðuð sérstaklega kemur í ljós að þau hafa hærri rekstrartekjur, meiri hagnað og lægri skuldir en búin 60 að meðaltali á árinu 1996. Með því að taka þau út úr 60 búa úrtakinu versnar meðaltals afkoma þeirra sem eftir verða og mismunur á afkomu hópanna breikkar. Mismunandi af- koma hópanna skýrist af því að búin 12 hafa að meðaltali verið lengur í rekstri og eru þ.a.l. stærri, skuldir minni og skuldasamsetning hag- stæðari. Telja má hins vegar að 12 búa úrtakið gefi raunhæft yfirlit yfir rekstrarþróun í greininni og sýni meðalafkomu fyrir bú sem eru a.m.k. 5 ára og eldri. Það má sjá á mynd 5 að undan- farin ár hefur rekstrarafkoma græn- metisbúa verið sveiflukennd. Eftir nokkur slök ár rétti greinin verulega við á árinu 1995 þegar hagnaður fyr- ir skatta náði um 11% af rekstrar- tekjum. Það sama ár nam veltuaukn- ing frá árinu á undan að meðaltali um 41%. Hin jákvæðu teikn sem verða á rekstrarafkomu grænmetis- búa á árinu 1995 er hinsvegar ekki fylgt eftir á árinu 1996 þar sem hagnaður fyrir skatta lækkar niður í 7% af rekstrartekjum. Rekstrartekjur aukast um 3,5% á meðan rekstrar- gjöldin hækka um 8%. Athygli vek- ur liðurinn „önnur aðkeypt þjón- usta“ í rekstrarkostnaði búanna en þar er að stærstum hluta um að ræða sölukostnað og sjóðagjöld. Þessi kostnaður telur á árinu 1996 rúmar 1,7 millj kr. að meðaltali hjá búun- um 12 og hækkar um rúmlega 1,5 millj. kr. milli áranna 1994 og 1995 Tafla 3. Rekstraryfirlit árin 1992-1996; sömu 12 grænmetisbú Fjárhæðir í þúsundum króna á verðlagi ársins 1996 Breyting 1992 1993 1994 1995 1996 1992-1996 Rekstrartekjur 6.055 5.760 5.953 8.400 8.686 43% Rekstrargjöld 5.607 5.717 5.518 7.179 7.754 38% - þar af önnur aðkeypt þjónusta 192 202 213 1.730 1.744 810% Hrein hlutdeild fjármagns 448 43 436 1.221 931 108% Fjármagnsliðir -356 -463 -399 -331 -260 -27% - þar af vaxtagjöld/ verðbætur (-) -389 -555 -472 -461 -390 0% Oreglulegar tekjur og gjöld 12 -7 11 17 -59 Hagnaður/(tap) fyrir skatta 104 -428 47 906 612 488% Freyr 1/98 — 35

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.