Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 5
og seljum mjólk og að lokum er-
um við hjónin með skólaakstur í
Borgames fyrir hluta af sveitinni.
Það gengur ágætlega, ekki komið
teljandi snjóavetur lengi og gefur
nokkrar tekjur.
Guðbrandur á Staðarhrauni við uppgróinn bakka Tálma. (Ljósm. tók
Magnús Óskarsson).
Ég er aðallega með kúabú. Ég
er með um 40 kýr og tæplega
150 þúsund lítra greiðslumark
eins og er. Kýmar gefa ömggari
tekjur en sauðféð. Ég bætti ný-
lega við fjósið og útbjó mjaltabás
og keypti jafnframt meira
greiðslumark, enda var ég farinn
að framleiða meira en ég hafði
greiðslumark fyrir.
Rúllarþú allt þitt hey?
Já, þetta er annað árið sem ég
er eingöngu með rúllur. Aður var
ég bæði með vothey í flatgryfju
og svo þurrhey. Rúllumar em
hins vegar þægilegastar þegar fátt
fólk er á bænum.
Hverju leggur þú helst upp úr
við nautavalið?
Hvar hafið þið aj'rétt?
Hraunhreppingar hafa góðan
afrétt inni hjá Hítarvatni. Féð er
flutt þangað á vögnum. Fé mitt
fer mikið upp á Svarfhólsmúlann
og þar inn á afréttinn. Þar er
engin afréttargirðing og féð kem-
ur mikið sjálft heim þegar líða
tekur á sumarið. En það þarf líka
að fara í göngur, þær standa í þrjá
daga og það er gist tvær nætur í
fjallhúsinu við Hítarvatn.
Hvernig eru gangnaskil lögð
á?
Þessu er jafnað niður á fjáreig-
endur eftir fjáreign og allt um-
reiknað í peninga, annars vegar
kostnað á kind og hins vegar
dagsverk. Flestir vinna skilin
sjálfir eða kaupa menn til þess
en sumir, sem eiga fáeinar kind-
ur, vilja heldur borga. Áður fyrr
var fjártalan ákveðin þannig að
ærin var reiknuð sem 1,5 einingar
og geldféð ein eining en það er
ekki gert lengur.
Það er Afréttamefnd Hraun-
hrepps, sem stofnuð var við sam-
eininguna í nýja sveitarfélagið,
Borgarbyggð, sem leggur á
gangnaskilin. I henni em þrír
menn sem sveitarstjómin kýs.
Reynir þú svo að bceta lömbin
fyrir slátrun?
Þau fara bara á túnið þangað til
þeim er slátrað. Sláturvigtin hér
er um 15 - 16 kg í góðum árum.
Tvílembuprósentan hefúr verið á
uppleið, um 80% af ánum em
tvílembdar i seinni tíð og afurðir
eftir ána hafa farið yfir 27 kg.
Hvernig búi býrð þú, Þorkell?
Þorkell á Mel ásamt þremur börnum sinum, t.v. Ágúst og Eva Sóley og t.h.
Þóroddur, I kornakri sem ræktaður er á melajarðvegi.
Freyr 9/2002 - 5