Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 8

Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 8
stafafuru og fleiri trjá- tegundum og seinna lúpínu sem hefur dreift vel úr sér innan girðin- garinnar og lætur hvergi á sjá þó að talað sé um að hún útrými að lokum sjálfri sér. En hefur trjágróður- inn þarna breitt úr sér af sjálfsdáðum? I landinu var fyrir birkikjarr þegar það var girt og friðað og það hefúr vaxið vel og dreift úr sér. Stafafuran hefúr ekki gert það. Fyrstu tíu árin tók hún nánast engum fram- förum. Svo allt í einu tók hún viðbragð og núna rýkur hún upp. Um ræktun lúpínunn- ar eru nokkuð deildar meiningar. Eva Sóley Þorkelsdóttir é Mel með lúpinurætur og bendir á hnúðana sem vinna éburð fyrir lúpínuna. þessu og metur ástandið. Þegar eitt svæði er orðið sjálfbært þá er það „útskrifað" en þá er kannski annað svæði tekið fyrir á jörð- inni, eins og hér. A Mel er skógrœktarreitur, með lúpínubreiðum á milli trjánna. Hvernig er hann kominn til? Þetta er skógræktargirðing sem var til þegar við keyptum Melinn. Við keyptum jörðina af Guðrúnu Guðmundsdóttur og sonum henn- ar, Guðmundi og Aðalsteini Pét- urssonum. Hún var 93 ára þegar hún hætti búskap. Þau létu Skóg- rækt ríkisins hafa land undir þessa ræktun til 99 ára og það er til ítarlegur samningur um það frá árinu 1970. Skógræktin plantaði þama Hún hentar a.m.k. vel hér og er ekki að ganga á neinn annan gróður. Þetta er líka falleg jurt. Hins vegar em æmar fljótar að tína upp þær plöntur sem koma upp utan girðingarinnar. Eitt sumarið var hér lambær frá Mel sem nærðist helst á því að snúast kringum girðinguna og teygja sig eftir lúpí- nunni inn fyrir netið. Það er greinilegt að fé sækir í hana. Hefur ekki þröng staða bœnda á siðustu árum gert þeim erfitt fyrir að kosta börn sín til náms eftir grunnskóla? Guðbrandur: Jú, þetta er auð- vitað þungt og ég held það erfið- asta við að búa í sveit. Það þarf annað hvort að kaupa eða leigja húsnæði nálægt skólanum og hér er það þá Fjölbrautaskólinn á Akranesi. Á móti kemur að það em greiddir dreifbýlisstyrkir upp í húsaleigu og ferðakostnað. Þær greiðslur koma eftir á, eftir hverja önn. Svo öngla unglingamir sér oft- ast eitthvað inn á sumrin en skól- amir heijast sífellt fyrr á haustin, t.d. nú í haust 21. ágúst á Akra- nesi. Skólaárið er hætt að miðast við göngur á haustin og sauðburð á vorin. Maður verður að neita sér um utanlandsferðina til að koma bömunum til mennta. Hefur ungt fólk verið að taka við jörðum hér í sveit á síðustu árum? Nei, flestir bændur hér em þetta á sextugs- og sjötugsaldri. Það em bara tvö böm í sveitinni innan við skólaaldur. Það hafa hins vegar verið að fara jarðir úr ábúð, ekki síður stórbú en lítil. Fyrir tveimur ámm var lagt niður um 700 kinda fjárbú í Tröðum og kvótinn seldur ríkinu. Það má segja að á móti því komi að á tveimur bæjum er nú boðið upp á hestaferðir, á Stóra-Kálfalæk og Hrafnkelsstöðum. Þar býr þýsk kona sem sér um þennan rekstur og fer með gestum í ferðimar. Á Kálfalæk er þetta á vegum fyrir- tækisins Ishestar. Eru tekjur af laxveiði hér í sveit? Já, Hítará er í eigu jarðanna sem að henni liggja og af henni fást töluverðar leigutekjur. Stangaveiðifélag Reykjavíkur er með hana á leigu núna. Með í vatnasvæði Hítarár em ámar Tálmi, Grjótá og Melsá. Svo er Álftá hér fyrir sunnan líka leigð. Það munar heilmikið um veiðitekjurnar hér i sveit. Félagsmál Hér er búnaðarfélag? Já, Búnaðarfélag Hraunhrepps. j 8 - Freyr 9/2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.