Freyr - 01.11.2002, Blaðsíða 30
Fóðurgangar mað
færanlegum framhllðum
Inngangur
Eitt af lykilatriðum þess að ná
árangri í mjólkurframleiðsu er að
huga vel að hönnun fóðursvæðis-
ins í fjósum með það að mark-
miði að hámarka fóðurát. Hönn-
un fóðursvæða gerir einnig kröf-
ur um vinnuhagræðingu og
vinnulétti hvað varðar meðhöndl-
un fóðursinsen rétt hönnun þeirra
getur aukið fóðurát og mjólkur-
framleiðslu. (Brouk, Smith og
Harner 2000).
Samkvæmt Krohn og Kong-
gaard (1976) er fóðurát einkum
háð fjórum atriðum. Þau eru fóðr-
ið, gripurinn, umhverfi og félags-
leg áhrif annarra gripa. Roseler
et al. (1997) tók saman gögn úr
nokkrum tilraunum til að greina
þá þætti sem hafa mest áhrif á
fóðurát. Samkvæmt niðurstöðum
hans skýrir mjókurmagn stærstan
hluta þess breytileika sem fram
kemur í fóðuráti, eða 45%. Aðrir
þættir eins og loftslag skýra 10%
og fóður og hirðing 22%. Þannig
má segja að 1/3 af breytileika
fóðuráts skýrist af hönnun fóður-
svæðins og fóðrun.
Með stækkandi fjósum verður
krafan um vinnuhagræðingu sí-
fellt meiri. Tækni, sem felst í því
að láta kýmar hafa aðgang að
—
1. mynd. Fóðurfæra. Búnaðurinn virkar þannig að plankinn vinstra megin á
myndinni er dreginn að jötumilligerðinni með keðju og þannig er fóðrið fært
smám saman að kúnum. (Mynd: Fat Berichte nr. 578/2001).
miklu magni af fóðri í einu, hefúr
náð talsverðri útbreiðslu hér á
landi. Til er tvenns konar út-
færsla á slíkum fóðurgöngum.
Annars vegar þar sem jötugrindin
er færð að fóðrinu (fóðurgangar
með færanlegum framhliðum /
samkeyranlegir fóðurgangar) og
hins vegar þar sem fóðrið er fært
að jötugrindinni (fóðurfæra).
Dæmi em um, hér á landi, að
seinni aðferðin sé notuð án eigin-
legs tæknibúnaðar heldur er rúll-
um ýtt smám saman að jötugrind-
inni með dráttarvél eða handafli.
Með þessari tækni er gripum
tryggður aðgangur að fóðri allan
sólarhringinn. Rannsóknir á at-
ferli mjólkurkúa hafa leitt í ljós
að aðeins þriðjungur af átplássi
er notaður hverju sinni þar sem
aðgengi er að fóðri allan sólar-
hringinn og engin samkeppni um
átpláss (Olofsson, 1992). í að-
búnaðarreglugerð flestra landa er
því gert ráð íyrir að þrjár kýr
megi vera um hvert átpláss (0,6
m) ef aðgengi er að fóðri allan
sólarhringinn (Olofsson, 2000).
Þetta ákvæði er m.a. að finna í
nýrri aðbúnaðarreglugerð fyrir
nautgripi hér á landi, (Landbún-
aðarráðuneytið, 2002).
| 30 - Freyr 9/2002