Freyr - 01.11.2002, Qupperneq 28
78%
U < 200 þús í a.m.k. tveimur
mælingum
■ > 200 þús í a.m.k. tveimur
mælingum
3. mynd. Hlutfallslegur fjöldi kvigna með frumu-
tölu undir eða yfir 200 þúsund, í a.m.k. tveimur
mælingum, á fyrstu fjórum mánuðum eftir burð.
Frumutala
Tuttugu þeirra 92 kvígna, eða
22% þeirra, sem frumutala var
mæld hjá a.m.k. tvisvar sinnum á
fyrstu íjórum mánuðum eftir
burð, höfðu frumutölu hærri en
200 þúsund frumur í millilítra í
tveimur eða fleiri mælingum, sbr.
3. mynd. Þetta hlutfall var þó
nokkuð breytilegt eftir bæjum,
frá því að engin væri yfir þessum
mörkum upp í að 57% væru það.
Förgun
Á fyrsta mjaltaskeiði var fjór-
um af þeim 145 kvígum, eða 3%,
sem upplýsingar lágu fyrir um í
skýrsluhaldi BÍ, fargað vegna
júgurbólgu.
Samband selens og frumutölu
Ekki reyndist vera marktækur
munur á meðaltali GP-gilda hjá
kvígum sem höfðu frumutölu
hærri en 200 þúsund í tveimur
eða fleiri mælingum á fýrstu
fjórum mánuðum eftir burð og
þeirra sem höfðu frumutölu undir
þessum mörkum
Skoðað var hvort kvígur með
minna en 50 einingar GP væru
líklegri til að hafa frumutölu
hærri en 200 þúsund í tveimur
eða fleiri mælingum á fýrstu
fjórum mánuðunum eftir burð en
kvígur með meira en 50 einingar
GP. Svo reyndist ekki vera.
Umræður
Athygli vekur að
næstum allar kvígumar
í þessari rannsókn voru
með GP-gildi innan við
200 einingar, sem al-
gengt er að miða við
sem æskilegt lágmark,
og að mikill meirihluti
þeirra er með minna en
100 einingar og meira
en helmingur með
minna en 50 einingar.
Júgurheilsa ljórðu
hverrar kvígu í þessari
rannsókn var slæm, ef miðað er
við frumutölu á fyrstu fjórum
mánuðunum eftir burð og förgun
vegna júgurbólgu. Vert er þó að
athuga að breytileikinn á milli
bæja var nokkuð mikill og
vandamálið því verulega mikið á
sumum bæjum en lítið sem ekk-
ert á öðrum.
Fyrirhugað var að kanna hvort
júgurheilbrigði hjá kvígum með
mjög lágan styrk selens væri
verra en hjá þeim kvigum sem
höfðu hærri styrk en þegar nið-
urstöður mælinga á GP lágu
fyrir var ljóst að þetta var ekki
mögulegt þar sem svo til allar
kvígumar vom með gildi innan
við 200. Jafnvel þó að mörkin
væra sett við 100 vora ekki
nægilega margar yfír þeim
mörkum til samanburðar, en eins
og fram hefur komið vora 87%
kvígnanna með gildi innan við
100.
Meira af forvitni en á fagleg-
um grandvelli, var júgurheil-
brigði hjá kvígum með meira en
50 einingar GP borið saman við
júgurheilbrigði hjá kvígum undir
þeim mörkum en ekki reyndist
vera marktækur munur á hópun-
um, hvorki hvað varðaði líkur á
greiningu júgurbólgusýkla á
fyrstu viku eftir burð né frumu-
tölu hærri en 200 þúsund í
tveimur eða fleiri mælingum á
fyrstu fjórum mánuðum eftir
burð. Þessi niðurstaða kom ekki
á óvart þar sem styrkur selens
hjá báðum hópunum var undir
lágmarks mörkum.
Nokkrir veikleikar era á rann-
sókninni. Einn af þeim, sem
mikilvægt er að benda á, er að
E-vítamín var ekki mælt og því
ekki vitað hvort styrkur þess var
nægilega hár til að vega upp á
móti lágum selenstyrk. Einnig
þarf að hafa í huga að rannsókn-
in tekur til tiltölulega fáfra bæja
og þeir eru allir staðsettir á Vest-
urlandi. Þessi atriði draga úr
áreiðanleika og nákvæmni niður-
staðnanna, sem og þrengja gildi
þeirra vegna hugsanlegrár
skekkju vegna bús- og jand-
fræðilegra aðstæðna. Þaer má því
ekki nota til að alhæfa um
júgurheilbrigði og styrk>.selens
hjá kvígum í landinu. Aftur á
móti geta þær þjónað sán
grundvöllur að nánari rannsókn-
um. h
Ályktanir
Niðurstöður rannsóknárinnar
styrkja þær gransemdir $em
menn hafa haft um lágan styrk
selens hjá kvígum hér á landi,
sem hafa ekki fengið kjamfóður
né steinefnablöndur. I ljósi þessa
má hiklaust hvetja bændur til að
láta kanna hvemig þessu er farið
á búum þeirra og sjá tihþess að
þörf kvígna fyrir selen s| full-
nægt. h
Rannsaka þarf nánarftyrk sel-
ens og annarra sneínl^ffa í ís-
lensku fóðri, sem cfg vítamína og
steinefna, og kanna áhrif og hag-
kvæmni þeirra aðferða sem í boði
era til að tryggja að kvígur fái
nægilegt magn af þessum efnum
í uppvextinum.
Nauðsynlegt er að kanna hvort
tíðni júgurbólgu hjá fyrsta kálfs
kvígum sé raunveralega jafn há
og fram kemur í þessari rann-
| 28 - Freyr 9/2002