Freyr - 01.11.2002, Page 38
Maðurinn til vinstri á miðri mynd er danski bóndinn Lars Pedersen, fráfar-
andi formaður NÖK. Athygli okkar vakti hvernig stoðir höfðu verið fjar-
lægðar úr þessari byggingu og stálgrind sett innan í. Þessi aðferð gæti
hugsanlega gengið í hefðbundnum islenskum fjósum ef verió er að breyta
yfir í lausagöngu.
fjarlægó milli býla í samrekstri
megi ekki fara yfir 10 km.
Töluvert var ijallað um sam-
keppni á ráðgjafar- og rannsóknar-
markaði en aðfangasalar og einka-
aðilar sinna slíku í vaxandi mæli.
Sveinn Sigurmundsson, ffam-
kvæmdastjóri Búnaðarsambands
Suðurlands, gerði grein fyrir stöðu
þessara mála á ísland. Þá ræddu
menn gildi fyrirbyggjandi aðgerða
til að koma í veg fyrir sjúkdóma,
ekki síst þátt dýralækna í því.
Fjallað var um notkun tölvu-
skráðra upplýsinga og í ffamhaldi
af því hvemig nútímabóndinn ver
tíma sínum. Hjá flestum kom
ffam sú skoðun að mikilvægast
væri fyrir bóndann að veija tíma
sínum meira í bústjómina og um-
hirðu gripanna en kaupa að ýmsa
sérhæfða vinnu, eins og bókhald,
sértæka vélavinnu o.fl. Loks var
fjallað nokkuð um ræktunarstarfið
og áhrif ýmissa tækninýjunga,
eins og kyngreiningar á sæði, fóst-
urvísaflutninga og genabreytinga.
Meðal annars var á það bent að þó
að klónun væri nú orðin möguleg
með nautgripi væri þar ekki um
ræktun að ræða, aðeins fram-
leiðslu, því að erfðabreytileiki
væri forsenda ræktunar og ffam-
fara.
Hvaða gagn hafa svo íslenskir
bændur af svona samkomum?
Við getum að sjálfsögðu ekki
svarað fyrir aðra en okkur sjálfa
en svar okkar er að þátttaka í
samstarfi sem þessu sé fyrir
flesta hluti jákvæð.
Þegar horft er til samanburðar
á íslenskum aðstæðum og því
sem við sáum þama, að ffá-
dregnu því forskoti sem veður-
og gróðurfar skapar, em niður-
stöður okkar þær helstar að menn
em í meginatriðum að fást við
það sama þegar um mjólkurffam-
leiðslu er að ræða, þ.e. öflun
gæðafóðurs, nýtingu lands og
endurræktun, heilbrigði, velferð
og kynbætur gripa, með það að
markmiði að auka afkastagetu og
afurðasemi búanna.
Sama má segja hvað tækni og
nýjungar varðar, t.d. byggingar,
fóðmn og mjaltir. Þegar inn í
fjósin er komið em menn að fást
við mjög svipaða hluti og fer það
helst eftir fjölda gripa og stærð
búa hversu sjálfvirkan og öflugan
búnað hver og einn velur sér.
SjálfVirkni við mjaltir er mikil,
íslenski hópurinn samankominn fyrir utan lýðskólann i Brönderslev þar sem
fundurinn fór fram.
| 38 - Freyr 9/2002