Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1940, Qupperneq 10
G
kr. fyrsta árið. Nýir fjelagar greiða fult gjalcl fyrir
kað ár, er þeir ganga í fjelagið, ef upptaka fer fram
fyrir 1. júní, en hálft gjald, ef þeir eru samþyktir
siðar. Ef fjelagsmaður skuldar eins árs tillag um ára-
mót, skal gjaldkeri gera honum aðvart um það í
ábyrgðarbrjefi. Geri skuldunautur ekki skil innan
þriggja mánaða, er hann þar með genginn úr fjelag-
inu, og skal þá strikast úl af meðlimaskrá þess. Sá,
er gengur úr fjelaginu, en óskar upptöku aftur, getur
þvi aðeins gerzt meðlimur á ný, að hann greiði allar
skuldir sínar við fjelagið.
7. gr. Fjelagið samþykkir Codex ethicus fyrir
stjettina, og er hver fjelagsmaður skyldur til að fylgja
ákvœðum hans. Á þeim stöðum, þar sem þvi verð-
ur við komið, skulu fjelagsmenn hafa samkomulag
um gjaldskrá fyrir tannlæknisverk. Aðalfundur skal
leggja samþykki sitt á slíkar gjaldslcrár.
8. gr. Breytingar á lögum þessum má gera á aðal-
fundi, ef % samþykkja. Tillögur um breytingar á
lögunum skulu fylgjá fundarboði, er sent sje til fje-
laga, áður en fundur er haldinn.
Codex ethicus Tannlæknafélags íslands.
Þannig samþ. á aðalf. 25. júlí 1935.
1. gr. Tilgangur þessarar samþyktar er að efla
samheldni og gott samkomulag meðal ísl. tannlækna
og venja þá á, að gæta hagsmuna stjettarinnar í hvi-
vetna og hafa sóma hennar og eflingu jafnan fyrir
augum.
2. gr. Enginn fjelagsmaður má gera tilraun til að
afla sjer viðskifta með óheiðarlegu eða ósæmilegu
móti eða óviðeigandi auglýsingum eða öðru skrumi.
Þeir mega einungis auglýsa starfa sinn samkvæmt 12.
gr. laga nr. 47, frá 23. júní 1932.
Enginn fjelagsmaður má nota á neinn hátt titla
eða þess háttar (útl. doktorsnafnbót), sem fjelags-
stjórnin viðurkennir ekki.
3. gr. Fjelagsinenn mega ekki taka stöður sem
tannlæknar hjá þvi opinbera, eða hjá neinni stofnun