Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1940, Blaðsíða 26
22
lækninga að nýju, ef hún legðist niður með öllu, og
sömuleiðis álitum við, að ef hafist væri handa á ný,
myndu tannskemdir í efri bekkjunum, er enga við-
gerð hefðu fengið frá 7 ára aldri, vera orðnar það
miklar, að ekki væri um neinar aðgerðir að ræða
i allflestum tilfellum, en aðeins útdrátt og gerfitenn-
ur og þyrfti þá með reglubundnum aðgerðum í neðri
bekkjunum að byrja að vinna tannlækningarnar upp
í það ástand, sem þær þó eru komnar í nú. Að þessu
alhugyðu ákváðum við að vinna þessa 3 tíma á dag
að viðhaldi tanna í neðri bekkjunum, eftir því sem
tími ynnist til og reyna með ráðleggingum að hafa
áhrif á börn í efri bekkjunum að leita tannlæknis
utanskóla, eftir þvi sem kostur væri á.
Þó að starfskraftarnir hafi jæssi ár aldrei leyft
það, að skólarnir fengju að fullu þá tannaðgerð og
viðhald tanna, er þyrfti, hefir hinsvegar á hverju
ári síðan Hallur Hallsson árið 1926 hóf skýrslugerð,
fario fram allnákvæm tannskoðun og skýrslugerð um
tannskemdir i barnaskólunum á hverju ári. Eru þess-
ar skýrslur allar fyrir hendi og sýna glögglega á-
standið á hverjum tíma.
Ef lilið er yfir tölur þær, er koma fram í skýrsl-
unum, má sjá, að um 90% af þeim börnum, seni í
bekkjunum eru, hafa leitað tannlæknis, og að minsta
kosti mætt til tannskoðunar og byrjað aðgerð, ]jó
ÖIJ hafi ekki lokið henni. Talan er auðvitað nokkuð
mismunandi í hinum ýmsu bekkjum, en er þó flest
árin milli 86—97% af tölu barnanna. Er það mjög
lík tala og í skýrslum erlendra skólatannlækna. Sömu-
leiðis má sjá af skýrslum þessum, að tannskemdar-
prósentan í 7—8 ára börnum í neðstu bekkjum skól-
anna, en fæst af þgim hafa notið neinna tannlækn-
inga áður, helzl mjög lík öll árin, er t. d. árið 1926
í skýrslu Halls Hallssonar í 1. og 2. hekk, sem svar-
ar lil 7 og 8 ára bekkja nú, 2,08 í stúlkum og 3,31
i drengjum skemd tönn i hverju barni að meðaltali
og helzt talan mjög lík flest árin, er t. d. árið 1934
—35 að meðaltali 2,56 og 2,67 skemd tönn í hverju
barni átta ára. En í efri bekkjum skólans, sem hafa