Fylkir


Fylkir - 23.12.1967, Page 14

Fylkir - 23.12.1967, Page 14
Unnið við Iöndun við Stokkhellu í kringum aldamótin. Saltfiskþurrkun á Stakkstæðum Gísla J. Johnsen sunnan við verzlunar- hús Edinborgar, þar sem rafstöðin stendur nú. Húsin, sem á myndinni sjást standa ennþá, og eru eign Einars Sigurðssonar. Myndin er tekin árið 1923. V. b. Sigríður VE 240. Áttæringurinn Gídeon. Þessi mynd mun vera tekin árið 1922 og sýnir hún uppskipun á timbri við Tangabryggjuna. Kvenfólk er meðal annars í timburvinnunni. Á bryggjunni stendur fyrsta vörubifreiðin, sem keypt var hingað til Eyja. Það er vel viðeigandi að birta eins og eina skipshafnarmynd í þessum þætti. Hér er skipshöfn Ólafs Ingibergssonar á v.b. Karli fyrir rúmlega hálfri öld. l’ppskipun á salti. Skipið liggur á innri liöfninni. Saltið er látið renna af borðstokk þess niður í uppskipunarbátana, og síðan er því mokað upp úr þeim og upp á bryggjuna. Þar var því síðan mokað upp á bíla eða vagna. Ólík vinnubrögð þeim, sem tíðkast í dag. Lengi rak Isfélag Vestmannaeyja matvöruverzlun, sem sérstaklega verzl- aði með kjötvörur. Á milli suðurstafns, elzta íshúss þess og Strandvegar lá pallur. Á þessum palli er verið að slátra nautgrip fyrir verzlunina.

x

Fylkir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.