Skátablaðið - 01.04.1959, Síða 22
40. §íðan
VEizru...
að B.Í.S. er að fá til landsins erlendar skáta-
kvikmyndir, sem síðan verða lánaðar út
til þeirra félaga, sem hug hafa á? — Hér
er m. a. um að rtsða kvikmyndina um
Jamboree 1957, mynd um alþjóða rekka-
mótið í Voss, Noregi og fleiri myndir.
að upplag bandaríska skátablaðsins „Boy’s
Life“ er um 1 milljón og níu hundruð
þúsund eintök?
að það er ávallt mikill viðburður í sögu
skátablaðsins, ef skátaforingja úti á landi
dettur í hug að senda blaðinu efni?
að félagsforingjaskipti hafa orðið í Kven-
skátafélagi Reykjavíkur? Hefur Brynja
Ólafsdóttir tekið við starfinu af Auði
Garðarsdóttur.
að stofnuð hefur verið Hjálparsveit skáta
á Akranesi? Er okkur nú kunnugt um
fjórar slíkar sveitir á landinu, en það er
í Reykjavík, Hafnarfirði, á ísafirði og
nú síðast á Akranesi. Foringi hinnar nýju
sveitar er Þórarinn Ólafsson leikfimi-
kennari.
að íslenzkir skátar hyggja til tveggja hóp-
ferða til útlanda í sumar? — 10 skátar frá
Skátafélagi Reykjavíkur fara til Þýzka-
lands í boði skáta, er dvöldust hér s.l.
sumar. Einnig munu drengjaskátar frá
Hafnarfirði og Reykjavík sækja mót í
Danmörku.
að von er á fjölda erlendra skáta til lands-
ins í sumar? Er hér um að ræða skáta,
er sækja munu landsmótið nyrðra: Eng-
lendinga, Skota, Norðmenn, Svía og
jafnvel frá fleiri þjóðum, drengi og stúlk-i
ur. Einnig hefur stór hópur þýzkra
skáta boðað komu sína. Heil sveit úr
nágrenni Frankfurt, flokkur úr Rínar-
löndum og þrír frá Wupperthal koma á
ýmsum tímum frá júní til september.
Bréf hefur borizt frá skátunum í Fær-
eyjum og er jafnvel von á heilli sveit
drengjaskáta J)aðan til íslands í sumar.
HVAÐ ER ÞETTA?
•vuSv jtj 44n qvuuv )u,oat/
Qtj? vlvij uxnjsam uivs ‘uplj wiuixS uvfv on.£
Á 13. HÆÐ
Tveir þjófar, önnum kafnir í lióteli nokkrt’
erlendis, voru skyndilega truflaðir, er barið var
harkalega að dyrum.
„Opnið," var kallað hárri raust, „þetta er lög-
reglan!"
„Ja, hvað er til bragðs að taka?“ hvíslaði ann-
ar þjófurinn.
„Við verðum að stökkva út um gluggann,"
svaraði hinn.
„En við erum á 13. hæð."
Vinur minn, þetta er ekki stund til að vera
. hjátrúarfullur."
í Og síðan stukku þeir.
40
SKÁTABLAÐIÐ