Skátablaðið - 01.08.1959, Síða 5
INGOLFUR örn blöndal
0 Séra Helgi Konráðsson 0
FÆDDUR 24. NÓVEMBER 1902 DÁINN 30. JÚNÍ 1959
AÐ er sagt, að vegir Guðs sé órann-
sakanlegir. Ég fæ að minnsta kosti ekki
skilið, hvers vegna góðir rnenn eru burt
kallaðir á bezta aldri. Ég hefði haldið, að
þessi heimur okkar hefði mikla þörf fyrir
þá. Síra Helgi Konráðsson var góður mað-
ur, í þess orðs beztu merkingu og mátti
hann ekki vamm sitt vita í neinu. Hann
var sannur og góður prestur, sem prédik-
aði ekki aðeins með ræðum sínum í kirkj-
um og heimahúsum, heldur með öllu sínu
dagfari. Strax og maður tók í hönd hans,
fann maður hlýhug hans og drengskap. Það
var gott að vera með honum, hlusta á
ræður hans, ræða við hann og starfa með
honum. Það voru margir, sem leituðu til
síra Helga, enda var gott til hans að leita.
Síra Helgi var ágætur embættismaður,
samvizkusamur og afkastamikill, enda fór
það svo, að á hann hlóðust margvísleg
SKÁTABLAÐIÐ
störf, sem liann rækti með mikilli kost-
gæfni.
Árið 1934 fékk síra Helgi veitingu fyrir
Reynistaðaklaustursprestakalli og settist að
á Sauðárkróki. Og það var þar, sem ég
kynntist síra Helga. Það eina, sem ég vissi
um hann áður, var það, að ég hafði lesið
eftir hann grein urn skátahreyfinguna í
tímaritinu Stefni. Þessi grein hafði vakið
athygli mína. Það er og frekar sjaldgæft
að menn utan skátahreyfingarinnar riti
fræðilegar og sögulegar greinar um skáta-
hreyíinguna. Sr. Helgi var áhugamaður um
uppeldi og þroska barna og kynnti sér því
æskulýðsstörf. Hann sá í skátahreyfingunni
mikla og góða möguleika til tómstunda-
starfa fyrir börn og unglinga. Þegar til
stóð, að ég flytti úr Skagafirði 1935, snéri
ég mér til síra Helga og bað hann að taka
við forystu Andvara. Hann varð strax við
45