Skátablaðið - 01.12.1972, Page 9
Axel V.Tuliníus sæmdur silf-
urúlfinum, æðsta heiðursmerki
skáta.
Kówerskátar á Þingvöllum
1936.
Helgi Tómasson,
skátahöfðingi.
1934 Aukaaðalfundur B. í. S. um ný lög. 5. aðalfundur B. f. S. haldinn strax á eftir.
Tslenzkir skátar sækja mót aðVermalandi íSvíþjóð. Kvenskátafélagið Liljan,
Hafnarfirði, stofnað. Skátafélagið Valur, Borgarnesi, stofnað 18. marz.
Skátafélagið Fálkar, Akureyri, stofnað 21. maí. B. f. S. efnir til samkeppni
skáta í stundvísi. Verðlaun kr. 50.00, ætluð til áhaldakaupa. Væringjar
halda skátamót í Þjórsárdal. 14 norskir skátar heimsækja ísfirzka skáta og
ferðast um landið. Skátafélagið Andvarar, Sauðárkróki, hefur útgáfu Skáta-
blaðsins, fjölritaðs, ritstjóri: Franch Michelsen. 1. hefti af Ylfingabókinni
eftir Baden-Powell gefið út af B.Í.S.og Barnavinafélaginu Sumargjöf. Skáta-
félagið Andvarar, Sauðárkróki, stofnar fyrstu skátasveit á fslandi, sem
hefur aðsetur í sveit, og nefnist hún Skátasveit Staðarhrepps. Tilkynninga-
blað B.Í.S. kemur út fjölritað. Skátafjöldi 419 (drengir).
1935 4.1andsmót skáta haldið á Akureyri og umhverfi. Skátablaðiðbyrjar að koma
út á vegum B. í. S. Söngbók skáta kemur út. Skátafélagið Fylkir, Siglufirði,
stofnað 22. jan. Kvenskátafélagið Asynjur, Sauðárkróki, stofnað 1. júlí,
Skátafélagið Framherjar, Flateyri, stofnað 17. febr. Skátar á fsafirði að-
stoða við að bjarga hesti úr vök. Skátar á Siglufirði aðstoða við að bjarga
hesti úr ógöngum. II. hefti af Ylfingabókinni eftir Baden-Powell gefið út af
B. A S. og Barnavinafélaginu Sumargjöf. Skátafjöldi 509 (drengir).
1936 5. landsmót skáta haldið á Þingvöllum. Fyrsta skátamót Vestfjarða haldið í
Súgandafirði. 6. aðalfundur B.f. S. Kosinn varaskátahöfðingi, Steingrímur
Arason. Skátafélagið Útherjar, Þingeyri, stofnað 14. febrúar. Kvenskáta-
félag stofnað á Þingeyri. Skátafélagið Glaðherjar, Suðureyri, stofnað 28.
marz. Skátafélagið Drengir, Akureyri, stofnað. Hjálpræðisherinn í Reykja-
vík stofnar flokk herskáta. Skátafélagið Svanir stofnað á Stokkseyri. 3. Vær-
ingjadeild efnir til reiðhjólakeppni frá Kolviðarhóli að Sundlaugavegi í
Reykjavík. Sigurvegari Sigurður Þorgrímsson. Ernir efna til rei ðhjólakeppni
frá Kolviðarhóli að Vatnsþró í Reykjavík. Sigurvegari Sigurður Agústsson.
Skátafjöldi 667 (drengir).
1937 33 íslenzkir skátar sækja Jamboree í Hollandi. Skátafélagið Víkingar, Vík,
stofnað. Skátafélagið Heiðabúar, Keflavík, stofnað 15. september. Skátafélag
Hafnarfjarðar stofnað 2. febrúar. Nafninu síðar breytt í Hraunbúar (1945).
Skátar í Reykjavík aðstoða vegna inflúenzufaraldurs. 25 ára afmælis skáta-
hreyfingarinnar á fslandi minnzt með samsæti á Hótel Borg, þar sem við-
staddir voru 450 skátar og gestir þeirra. 2. Skátamót Vestfjarða haldið í
Dýrafirði. Stofnað skátafélagið Fjallbúar á Hofsósi. Hópsblaðið, síðar Ylf-
ingablaðið, kemur út í Reykjavík. B. f. S. tekur að sér blaðið Skátinn, og
byrjar að gefa það út sem foringja- og rekkablað. Rotary klúbburinn í
Reykjavík veitir tveimur reykvískum skátum ókeypis Jamboreeferð. Axel V.
Tulinius skátahöfðingi andast 8. desember. 20 félög innan B. f. S. Skáta-
fjöldi 768 (drengir).
1938 7. aðalfundur B. f. S. Helgi Tómasson kosinn skátahöfðingi og Henrik Thor-
arensen varaskátahöfðingi. 6. landsmót skáta haldið á Þingvöllum m. a. með
allmörgum erlendum þátttakendum. Baden-Powell og Lady Baden-Powell
koma til íslands á Skátaskipinu Orduna. Skátafélag Reykjavíkur stofnað 18.
september við sameiningu Væringja og Arna. Skátafélag Akureyrar stofnað
á annan jóladag við sameiningu skátafélaganna Fálkar, Drengir, Skátasveit-
ar Akureyrar og Skátasveitar Barnaskóla Akureyrar (stofnuð 26. nóvember).
Skátafélagið Stafnverjar, Sandgerði, stofnað. Skátafélagið Hólmverjar, Stykk-
ishólmi stofnað 6. október. Skátafélagið Völsungar, Reykjavík, stofnað 22.
febrúar. Skátafélagið Faxi, Vestmannaeyjum, stofnað 22. febrúar. Skáta-
félagið Birnir, Blönduósi, stofnað 8. ágúst. Kvenskátafélagið Stjarnan, Borg-
arnesi, stofnað 27. október. Væringjar gefa út veglegt afmælisrit. 1068
skátar, ylfingar og rekkar á fslandi.
1939 Kvenskátasamband fslands stofnað 23. marz (stofnfélög 9, félagar samtals
459).Hennar hátign, Ingrid krónprinsessaDanmerkur og íslands geristvernd-
ari íslenzkra kvenskáta. Skátafélagið Hólmverjar, Hólmavík, stofnað 10. f?br.
Kvenskátafélagið Skjaldmeyjar, Stykkishólmi, stofnað 20. apríl. Skátafélagið
fsland stofnað í Kaupmannahöfn 27. ágúst. Valkyrjur, fsafirði, standa fyrir
kvenskátamóti í Tungudal. Skáli S.F.R. við Hafravatn reistur. Nú eign K.S.
F.R. fslenzkir skátar sækja skátamót til Danmerkur og Skotlands. Skátafélag
Akureyrar gefur út blaðið „Skólaskátinn" Skátafjöldi 1164 (drengir). Vormót
Hraunbúa í Hafnarfirði haldið í fyrsta skipti, og hafa þau verið haldin árlega
síðan og sett mikinn svip á starf Hraunbúa.
SKÁTAB LAOIO
9