Skátablaðið - 01.12.1972, Qupperneq 17
HANNA LÍSBET
KATRIN GU'ÐMUNDS
Er skátastarfs þörf í nú-
tíma þjóðfélagi?
Ég tel að skátastarf eigi
alveg eins mikinn rétt á sér
nú og áður. Skátastarfið má
alls ekki lognast út af. Ég get
sagt fyrir sjálfa mig, að skát-
astarfið gerði mér gott, og
gerir enn. Ég hef haft mikið
gagn og reynslu frá mínu
starfi, bæði sem foringi og ó-
breyttur skáti, og tel ég að
það muni vera eins um marga
aðra, og full þörf fyrir starf-
ið, ekki sízt nú, á tímum óró-
leikans hjá ungu fólki. Það
hlýtur að vera meira þroks-
andi og mikið skemmtilegra
að fara í útilegur, ferðir eða
skipuleggja oghalda fundi með
skátum, heldur en aðhangaá
sjoppum eða rölta um götur
og stræti, og gera ekkert ann-
að en láta tímann líða.
Telur þú að grundvöllur
skátunar sé svipaður í dag og
var í upphafi?
Ég veit það ekki, en tel þó
að grundvöllurinn sé svipaður.
A hvern hátt mun skáta-
starfið þróast næstu árin að
þínum dómi?
Skátastarfið hlýtur að þró-
ast nú, eins og þaðhefur alltaf
gert. Þó er ég frekar svart-
sýn. Mér virðist áhuginn hjá
unglingum um fermingu alltaf
fara dvínandi. Þau telja sig
vera orðin of gömul fyrir
verkefni skátastarfsins og að
starfa í anda skátalaganna, en
það er ekki rétt, því skáta-
starf er fyrir alla, unga sem
gamla, Ég tel eitt brýnasta
verkefni fyrir hreyfinguna
veraþað að hvetja unglinga og
fullorðið fólk til starfa, ekki
síður þá eldri.
Katrín Guðmundsdóttir,
fsafirði.
GUÐMUNDUR LOGI
Er þörf á skátastarfi í nú-
tíma þjóðfélagi?
Já. Ungt fólk hefur alltaf
gott af að starfa með öðru
fólki að heilbrigðum og
skemmtilegum verkefnum.
Heldur þú að starfsgrund-
völlur sé svipaður nú, og í
upphafi skátunar á fslandi?
Það erxrauninni stórfurðu-
legt, að hreyfing, sem grund-
völlur var lagður að fyrir 70
árum, skuli enn halda gildi
sínu að mestu leyti, þrátt fyr-
ir þær gífurlegu þjóðfélags-
breytingar, sem orðið hafa á
þeim tíma, Því hlýtur sá
grundvöllur, sem lagður var
af Baden-Powell, enn að vera
nothæfur í grundvallaratriðum.
A hvern hátt telur þú, að
skátun muni þróast á næstu
árum?
Aldrei hefur orð farið af
spádómsgáfu minni, og vil ég
þess vegna sem minnst láta
eftir mér um framtíð skáta-
starfs. Það sýnist mér þó
augljóst, að ætli skátahreyf-
ingin að halda í við önnur
æskulýðsfélög, semflest virð-
ast hafa það eitt á stefnuskrá
að veita félögunum skemmtun,
verður eitthvað að gerast.
Foringjaskorturinn er án efa
stærsta vandamálið í dag. Ef
tekst að leysa þann vanda með
einhverjum ráðum, verður
fyrst hægt með góðu móti að
fara að vinna að tilraunum
með nýjarleiðir í skátastarfi.
Guðm. Logi Lárusson,
Akureyri.
Er þörf á skátastarfi í nú-
tíma þjóðfélagi?
Já, ekki síður en fyrir 60
árum. Það er svo margt, sem
glepur nútil dags, og þó skáta-
starf breytist með breyttum
tímum, á það þó að hafa sitt
gamla, góða gildi og traust.
Heldur þú að starfsgrund-
völlur sé svipaður nú, og í
upphafi skátunar á fslandi?
Þessu er varla hægt að
svara með já og nei. A sum-
um sviðum verður alltaf sami
grundvöllur, en á öðrum taka
tæknin ogþróunin stakkaskipt-
um, og skátastarf fer ekki
varhluta af því, hefur bæði
beizlað ökutækið og gjörbylt-
ingu á útbúnaði á tjöldum,bak-
pokum og öðrum útilegubún-
aði, þó ekki sé tekið dýpra í
árina.
A hvern hátt telur þú, að
skátun muni þróast á næstu
árum?
Það virðist nú alltaf ein-
hvers staðar kreppa skóinn,
og þó skátastarf virðist dvína
um tíma, rís það aftur. Það
hefur gengið í öldudölum und-
anfarið, og mun eflaust halda
áfram að ganga í öldudölum.
Ég hef trú á skátastarfi í
framtíðinni.
Hanna Lísbet Jónmundsdóttir,
Dalvík.
1 7
S KÁTABLAÐ IÐ