Skátablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 30
UPPBYGGING VARÐELDS.
Veljið skjólgóðan stað, sem er hæfi-
lega stór fyrir þann fjölda, sem áætl-
aður er að sæki varðeldinn, alls ekki
of stóran. Hafið bálköstinn tilbúinn, er
skátar koma til varðelds. Verið búin
að undirbúa dagskrá, með vígslu elds,
söngvum, leikjum, leikþáttum, rólegri
stund í lokin, og síðast en ekki sízt,
skemmtilegum skátahrópum.
Varðeldastjórinn verður að geta
stjórnað söng, (eða útvega sér aðstoð
við það), vera ófeiminn og tala hátt og
skýrt. Æskilegt er að hann sé í varð-
eldaskikkju og leiki á eitthvert hljóð-
færi, t.d. gítar. Varðeldurinn má ekki
standa lengur en eina og hálfa klukku-
stund. Til eru nokkrar bálbænir, sem
eru ágætar, en einnig erhægt að kveikja
í eldinum með því að nokkrir skátar
(1 úr hverjum flokki) komi með logandi
kyndla og leggi í eldinn, eða að logandi
kyndill er bundinn í snæri og látinn
renna niður í eldinn.
Söngvar þurfa að vera af öllum teg-
undum, gamlir, góðkunnir söngvar, en
einnig væri æskilegt að kenna 1-2
söngva á hverjum varðeldi, og munið
að láta fólk taka með sér söngbækur.
Agætt erað úthluta fjölrituðum blöð-
um með þeim söngvum, er þið ætlið að
kenna á varðeldinum. Keðjusöngvar
hleypa kappi og fjöri í fólk, og margir
eru til mjög skemmtilegir. Ef kalt er í
veðri, verður varðeldastjórinn að grípa
til einhverra söngva með hreyfingum,
t. d. höfuð, axlir, hné og tær, hoki, poki,
og fleiri. í lok varðeldsins ber meira á
rólegum söngvum, og næst þá oft upp
góð stemning.
Leikir. Ýmiss konar keppnir, t. d. á
milli félaga, sveita eða flokka, eru
skemmtilegar. Þetta geta verið boð-
hlaup, orðaleikir, þættir úr skátapróf-
um, spurningaþættir, danskeppnir o.s.
frv. Gott er að hafa þetta í léttu formi.
Sígilt er orðið hjá skátum að úthluta
verkefnum til þátttakenda stuttu fyrir
varðeldinn. Er þá lítill tími til undir-
búnings,og atriðið verður eftir því, oft
fremur lélegt. En við fslendingar eig-
um mörg gömul kvæði, sem hvert
mannsbarn lærir í barnaskóla, t. d. eru
mörg kvæði eftir Davíð Stefánsson, sem
er auðvelt að búa til atriði úr, svo sem
Bréfið hennar Stínu, Sálin hans Jóns
míns, o.fl. En þá verður að vera góð-
ur upplesari til staðar.
30
SKÁTABLAÐIÐ