Prentarinn - 01.01.1979, Blaðsíða 13
annars tilboðsgjafa. Því verður
áfram reynt að fylgjast með
framboði.
Sameiningarmál.
Allt frá áramótum hefur
mikill tími verið lagður í að ná
samkomulagi í samstarfsnefnd
félaganna (BFÍ, GSF og HÍP)
um hugmyndir að lögum og
reglugerðum, ef þessi félög
sameinast í eitt. Má segja að
mest allt starf stjórnarinnar hafi
beinst að þessu stóra máli, enda
mikið í húfi. Samstarfsnefnd-
inni hefur nú tekist að senda frá
sér álitsgerð um hugmyndir
sínar. Reiknað er með að hvert
félag hafi ítarlega umfjöllun um
hugmyndir nefndarinnar og
geri sínar athugasemdir. Um
þessi sameiningaráform verður
rætt hér á fundinum undir
liðnum önnur mál eins og fram
hefur komið í dagskrá fundar-
ins. Það er því ekki ástæða til að
rekja þessi mál frekar í skýrslu
stjórnar. En rétt þykir að taka
fram, að það er hugmynd
stjórnarinnar að boða til sér-
stakra félagsfunda og vinnu-
staðafunda ef óskað er eftir því,
til að fá nógu mikla umræðu um
sameiningaráformin. Af þessu
leiðir, að framhaldsaðalfundur
er nauðsynlegur annað hvort í
sumar eða í haust. Sá fundur
myndi þurfa að taka endanlega
ákvörðun um félagsslit eða
ekki.
Niðurlag.
Hér hafa verið rakin helztu
verkefni stjórnarinnar síðast-
liðið starfsár. Sjálfsagt má deila
um hvort vel eða illa hafi tekizt
Ljóst ætti þó að vera að mikil
umræða um skýrslu þessa og
skýrslur nefnda, sem hér fara á
eftir, er æskileg með tilliti til
þess, að næsta stjórn hafi gott
vegarnesti frá þessum fundi.
F.h. stjórnar
Ólafur Emilsson.
Skýrsla fasteignanefndar.
í fasteignanefnd síðastliðið
starfsár voru: Baldur H. Aspar,
formaður, Kristján G. Berg-
þórsson, ritari og Þórir Guð-
jónsson, gjaldkeri.
Síðastliðið vor, ákvað nefnd-
in að ganga frá aðalvegi upp í
efra hverfi í sumarbústaðalandi
HÍP í Miðdal og fékk nefndin
Jóhann G. Bergþórsson verk-
fræðing til að gera athuganir á
svæðinu. Að athugun lokinni
lagði hann fram lauslega fram-
kvæmdaáætlun í átta liðum
ásamt lauslegri kostnaðaráætl-
un upp á ca. 3 milljónir.
Mestum hluta þessa verks er
nú lokið, eftir er að framlengja
hliðarvegi, einnig að ræsa fram
á fyrirhuguðu tjaldstæði.
Þá voru lagfærð tjaldstæði og
gerð ný fyrir neðan neðra
hverfið, settur upp vaskur
ásamt tilheyrandi hreinlætisað-
stöðu.
Hverfisgata 21 var máluð að
utan í sumar, að undangenginni
meiri háttar viðgerð, sem virðist
hafa tekist allvel. Margt er samt
enn ógert, sem þarf bæði breyt-
inga og lagfæringa við.
Itrekað var reynt að ná sam-
komulagi við Magnús Blöndal,
*n tókst ekki, svo nefndin fékk
Áma Guðjónsson hrl. til að
taka það mál að sér.
Þetta er það helzta sem fast-
eignanefnd vann að s.l. starfsár.
Baldur H. Aspar, formaður.
Störf fræðslunefnda.
Segja má að störf fræðslu-
nefndanna hafi í aðalatriðum
verið tvíþætt. Annars vegar
þurfti að útbúa námskrá og
námsgögn fyrir Prentskólann.
Þau verk voru unnin í samstarfi
við kennara skólans og Iðn-
fræðsluráð. Hins vegar sáu
fræðslunefndirnar, í samvinnu
við Prentskólann, um námskeið
þar sem reynt var eftir föngum
að kynna mönnum nýja tækni
og breytt vinnubrögð — sér-
staklega í setningunni.
Á s.l. tveimur árum hefur
Prentskólinn eignast talsvert af
nýjum tækjum og vélum. Ný
ljósaborð og nýjar innréttingar
hafa einnig verið smíðaðar í
setningardeildina. Öli kennslu-
aðstaða hefur batnað að mikl-
um mun og um síðustu áramót
bættist svo ný Linoterm-setn-
ingartölva við tækjakostinn.
Þetta er á margan hátt fullkom-
in vél og heppileg til kennslu.
Hún hefur reynzt prýðilega í
alla staði.
í fyrravornáðistsamkomulag
um deildaskiptingu og náms-
brautir í Prentskólanum og þá
var jafnframt ákveðið að fela 6
manna nefnd — einum frá
'írenfarinn — 13