Skólablaðið - 01.10.1947, Qupperneq 3
1-2 fbl.
október-nóvem'ber 1947.
23. arg.
orsmci
Með þessu blaði er hafinn 23« ar-
gangur Skólahlaðsins. Að líkindum verður
útgafu þess enn hagað með svipuðum hætti
og undanfarið, svo framarlega sem engir
óviðráðanlegir örðugleikar verða Þrándur
í Götu þess. Þege.r nú Skólahlaðið vitjar
ykkar enn einu sinni, er það með ein-
dregnum tilmælum okkar, að þið styðjið
það með ráðum og dáð og kappkostið að
gera það sem fjölhreyttast og læsileg-
ast.
Mikið hefir ve.ntað á, að nemendur
legðu hlaðinu lið sitt og krafta, enda
hefur það oft horið þess leiðinleg vitni.
Menn eru furðanlega óframfærnir
að hirta skrif sín og áhugamál fyrir
augum fjöldans og láta sór ekki skilj-
ast, að ve.rla verður hart a tekið, þo
að einhverjir vankantar sóu á smxðinni.
Aðstandendur Skólahlaðsins hafa
oftast orðið fyrir meira og órettmætara |
aðkasti en nokkrir aðrir emhættismenn
nemenda. Að vísu verður að jata, að
starfsemi Skólahlaðsins hlýtur að veru- j
legu leyti að hvíla á ritstjórn þess, en 1
þeir , sem að hlaðinu hafa unnið, munu
áreiðanlega vera sammála um, að efnis-
söfnun og allur annar undirhúningur að
útgáfu þess er ærið verkefni fimm manna
ritnefndar.
En sannleikurinn er raunar sá, að
Skólahlaðið er sá þáttur í fólagslífi
j nemenda, sem mestum framförum hefur tekið
| á sama tíma, er Önnur félagsstarfsemi
skólans veslast upp,
Enginn vafi er á því, að í öllum
þeim fjölda, sem nú eru í skólanum, hlýtui
að leynast margt pennafærra manna, er
grafa pund sitt í jörðu.
Þeir og nemendur yfirleitt ættu að
gera sór þess ljosari grein, að Skola-
hlaðið hlýtur að meira eða minna leyti
að vera spegilmynd þeirra á hverjum tíma,
og það er því þegnskaparskylda ykkar allr.
að vinna að velferð þess og viðgangi.
E. J.