Skólablaðið - 01.10.1947, Side 4
r
1 undanförnum árum hafa orðið
miklar hreytingar á skólanum okkar.
Samkvæmt lögmáli þess tíma, sem
við lifum á, hefur hann þróaPt úr fá-
mennum embættismannaskóla í fjölmenn-
an og almennan mennta'skóla. Einkum hefur
fjölgunin orðið mikil á síðustu árum.
Þessi mikla fjölgun hefur einnig
sína annmarka. Skólahúsið okkar gamln
hefur ekki fyigt þróun skólans og er
nú orðið allt of lítið fyrir þennan
mikla fjölda,
Varla er lengur mögulegt að líta
a skolanemendui’ sem eina heild,
Hið afleita fyrirkomulag kennsl-
unnar, að hafa mikinn fjölda nemenda
eftir hádegi, hefur einnig gert sitt
til að sundra þeim.
NÚ er svo komið, að nemendur
innan sama bekkjar þekkjast varla.
Reynt hefur verið að ráða bót á
þessu með auknu fólagslífi, enda hefur
það tekið afar miklum framförum a síð-
ustu arum,
Stærsti þáttur þess og blómlegasti
eru dansæfingar og dansleikir, en
margt fleira má nefna t.d. málfunda-
fólögin, taflfólagið, tónlistarklúbb-
inn, selsferðir o.fl.
Að vísu hefur fólagslíf allt
verið miklum breytingum undir orpið
frá ári til áps.
Framtíðin, málfundafólag lærdóms-
deildar, hefur undanfarið starfað lít-
ið, og er það nemendum eldri bekkj-
anna til skammar.
Selsferðir hafa að vísu verið
fremur reglulegar, en í rauninni mjög
misheppnaðar. Reyndar er það mjög undir
fólagslyndi í bekkjunum, hvernig þær
takast, en almennt hefur fengizt sú
reynsla, að nemendur hanga í Selinu
við ekki neitt.
Selinu er ætlað að auka skíðaferð-
ir og aðrar útivistir nemenda.
SÚ hefur þó ekki orðið raunin,
því að eins og vitað ers liggur Selið
| ekki vel fyrir skíðaferðir, og því miður
er lítill áhugi hjá nemendum fyrir
gönguferðum.
Það er því sýnt,að við þurfum enn
að herða róðurinn, ef duga skal.
^emendur þurfa að gera meira að
því, að koma fram sameiginlegá í nafni
skólans a opinberum vettvangi,
Allt of lítið er un sameiginlegar
ferðir, t.d. á skíði og skauta.
Rokkrar lofsverðar tilraunir voru
gerðar í þá átt síðast liðinn vetur,
j en þær hlutu yfirleitt illar undirtekt-
ir,
Mikið hefur róttilega verið rætt
j um nauðsyn á aukinni kynningu kennara
■ og nemenda, sem að sjálfsögðu er mjög
i æskileg, en okkur ber fyrst að vinna
j bug á sundrung þeirri, sem nú tvístrar
j fylkingu okkar nemenda.
I
I
j S. H.
j M,F.(í 6 A)"Þegar þátíðin var ekki
lengur þátiíð, þá þurfti að búa
til nýja þátíð og þá varð sögnin
ekkert nema þátíð,
Bogi (í 6 B við Örn Bjartmars) Þer vit-
ið allan andskotann nema það rótta
»
j í 5 B. Magnús E. þýðirs... Water always
flows downhill= Vatnið'flýtur alltaf
niður hæðirnar.
L.