Skólablaðið - 01.10.1947, Page 25
25
Framhald af bls. 6.
Þetta sama kvöld var okkur öllum
boðið í mikla veizlu. að lokinni keppn-
inni. Þar voru afhent ýms aukaverðlaun
fyrir afrek, unnin á mótinu.
Daginn eftir fóru nokkrir af okkur
norður til Östersund til þess að keppa,
en árangrarnir urðu ekki mjög góðir, sök-
um óhagstœðra veðurskilyrða.
Næsta keppni okkar var á Stockholm
Stadion 12. september. Laugardaginn
14» sept. háðum við fyrri fólagskeppni
okkar í Svíþjóð, en það var við Skuru-
Idrottsklub.
Keppni þessa unnum við með 59 stigum
gegn 55 » Skuru fékk "lánaða" 4 utan-
fólagsmenn til að keppa, en það dugði
ekki til, Þá daga, sem við vorum ekki að
keppa, fórum við niður í bæinn til þess
að skoða í sýningarglugga verzlananna,
og til f»ess að verzla, þeir, sem höfðu
nokkra sænska peninga. Það var'skemmti-
legt að ganga eftir "Kungsgatan" á ]beim
tíma dagsins, sem mest var um að vera.
Þarna fæst allt, sem hægt er að
hugsa sór að kaupa fyrir peninga.
L kvöldin fórum við oftast eitthvað
ut að skemmta okkur, þegar við komum
Jjví við.
Við fórum oft í fivoli, en þar var
þá fræg "rumba-hljómsveit", "Havana
Cubanboys". Stundum fórum við á dansstað,
sem hót "Bal Palais" á Kungsgatan.
Snemma morguns, sunnudaginn 14. sept
kvöddum við Stockholm og alla þa vini,
sem við höfðum eignast þar.
Ferðinni var heitið til Örebro,
þar sem í. R. átti síðar um daginn að
heyja felagakeppni við Örebro S. K.
í Örebro eru 6o þúsund íbúar.
MÓttökurnar voru með afbrigðum góðar
og keppnina, sen þar var háð, vann í. E.
með 45 stigum gegn 29.
Um kvöldið fórum við á átiskemmti-
stað þar í borginni, og skemmtum okkur
vel. Við urðum samt að fara miklu fyrr
en við óskuðum, því að ákveðið hafði
verið að fara með lestinni þá um kvöld-
ið til Malm®.
Það komu upp háværar raddir um
það, að bezt væri að vera x Örebro um
nóttina og fara daginn eftir til Malmö.
Orsökin til þess að við vildum
ekki fara var nú reyndar sú, að þarna í
safn,
ljós-
voru
Örebro var samankomið það mesta
sem við höfðum sóð af fallegum,
hærðum stúlkum, sem þar að auki
mjög skemmtilegar.
En fararstjórinn sagði,að við yrðum
að halda aætlun, og þá var ekkert við
því að gera. Við urðum að hlýða.
En hefðum við vitað, að ferðin með
lestinni yrði jafn leiðinleg og óþægileg
og hún varð, hefðum við áreiðanlega ekki
farið.
Þarna sátum við
reykingaklefa, innan
Frá Malmö fórum
til Kaupmannahafnar.
flestir okkar gerðu,
hótelið, var að leggjast til svefns,
að við vorum mjög syfjaðir.
í Kaupmannahöfn dvöldum við svo í
þrjá daga, en 18. sept. kom "Hekla" að
sækja okkur.
Veðrið var mjög vont, þegar við
komum hingað, lo vindstig, rigning, þoka
og myrkur,og sögðu flugmennirnir, að
þeir hefðu sjaldan lent í verra veðri og
sjaldan átt erfiðara með að finna flug-
völlinn.
Ferðin hafði gengið mjög vel og
orðið okkur öllum til mikillar ánægju.
illlir vorum við samt fegnir að vera
komnir heim aftur.
alla nóttina í
um blindfulla menn,
við strax með ferju
Það fyrsta, sem
þegar komið var á
því
Haukur Clausen.
RlgHEFHp.
Ritstjóri: Rögnvaldur jónsson
Aðalsteinn Guðjohnsen
Irni Elfar
árni Gunnarsson
Sigurður Magnússon
Auglýsinga s t j órar:
Ólafur Ólafsson
Valgarð Runólfsson
Ábyrgðarm. Sveinn Bergsteinsson,