Litli Bergþór - 02.03.1987, Page 9
Ovtfo'r a/afer'
I gegnum tiðina hefur Reykholtsskóla
i Biskupstungum verið fært margar stór-
gjafir sem vert væri að geta hér.
Ekki verður sú saga rakin að undan-
skildum gjöfum sem skólanum bárust i
vetur. Þar ber helst aó geta myndar-
legra gjafa frá Lionsklúbbnum Geysi
og Kvenfélagi Biskupstungna. Lions-
félagar söfnuóu fyrir myndbandstæki
ásamt skjá og kvenfélagskonur gáfu
tvo myndvarpa ásamt segulbandstæki til
tungumálakennslu.
Skólanefnd bauó stjórn ofantaldra
félaga ásamt stjórn foreldrafélagsins
sem stutt hefur viö starfsemi skólans
undanfarin ár i formi ýmisskonar aðstoöar
til samsætis.
Vió það tækifæri þakkaði formaður
skólanefndar, Þorfinnur Þórarinsson
góðar gjafi fyrir hönd skólans og
rakti i stuttu máli þróun skólans frá
stofnun hans 1928 til dagsins i dag.
1 máli hans kom fram aö margt hefur
breyst i aóstöðu allri á staönum og
minntist hann á ýmislegt frá þeim árum
er heimavist var i skólanum.
Skólastjóri Unnar Þ. Böðvarsson
flutti einnig þakkir starfsmanna og
sýndi frám á notagildi umræddra gjafa.
Voru m.a. skoóaóar gamlar kvikmyndir,
sem Gisli Bjarnason á Selfossi hafði
tekiö snemma á sjötta áratugnum i
Tungunum og látió færa yfir á myndband
meö mjög góðum árangri. Á eftir þáóu
gestir veitingar i boði skólanefndar.
Þaó er óneitanlega gott fyrir forráða-
menn aö finna þá velvild, sem fylgir
þessum gjöfum i garð skólans og eru
hér itrekaóar þakkir til allra þeirra
aóila sem stutt hafa við skólann á
undanförnum árum á einn eóa annan hátt.
Fyrir hönd skólanefndar
Sveinn A. Sæland
Stjórn Lionsklúbbsins meó videotækió
Stjórn foreldrafe1agsins asemt
Þorfinni og Unnari.