Litli Bergþór - 01.04.1989, Page 7
Atvinnumál - frh.
ég hér svæðið norðan við Gull-
fossveg frá Neðradal að Bratt-
holti.
Fyrir áhugamenn um skógrækt
er allt að vinna en engu að tapa.
Þjóðfélagslega hlýtur að vera
hagkvæmast að þeir sem búa,
hafa til umráða land á álitlegum
skógræktarsvæðum, planti og
hugsi um skóginn sjálfir heldur
en ríkið sé að kaupa land, byggi
vinnubúðir og láti vinnuflokka
vinna verkið.
Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga hefur hug á að
kaupaviðarkurl til vinnslu íverk-
smiðjunni. Tilþessaðfullnægja
því þarf nokkur hundruð hektara
af fljótsprottnum skógi sem yrði
síðan “sleginn” með stórvirkum
vélum með nokkurra ára milli-
bili. Alitlegasti staðurinn fyrir
þetta eru trúlega uppsveitir
Arnessýslu.
Nú er það okkar að taka jákvætt
undir þetta og drífa þetta í
framkvæmd.
Fyrir nokkrum árum heyrði ég
sagt frá ferð Eyfirðinga og
Skagfirðinga í Hallorms-
staðaskóg til að skoða skóg-
ræktina. Á heimleiðinni
dásömuðu og lofuðu Skagfirð-
ingar skóginn og eru trúlega enn
að ræða málin. Eyfirðingar
sögðu ekki neitt en þegar þeir
komu heim fóru þeir að planta
skógi. í hvom hópinn munum
við passa betur?
Hér hafa aðeins verið nefnd fáein
atriði til umhugsunar. Það sem
gildir í þessu öllu er að hafa
áhuga, trúa á málefnið og nýta
þá aðstöðu sem til staðar er án
þess að fara í mikla fjárfestingu.
Ef við styðjum hvert annað í
framfaramálunum verður ár-
angurinn fljótur að skila sér.
Þ.Þ.
Kvenfélag Biskupstungna 60
Kvenfélag Biskupstungna er 60 ára um þessar mundir. Það
var stofnað á Torfastöðum 24. janúar 1929, en þó ekki
formlega fyrr en 15. apríl sama ár. Þann fund sátu 18 konur.
Aðalhvatamaður að stofnun félagsins var Anna Eggertsdóttir,
læknisfrú í Laugarási.
í fyrstu stjóm voru eftirfarandi kosnar:
Anna Eggertsdóttir, Laugarási, formaður.
Steinunn Egilsdóttir, Spóastöðum, ritari.
Margrét Halldórsdóttir, Hrosshaga, gjaldkeri.
Árið 1932 tók síðan Sigurlaug Erlendsdóttir, Torfastöðum
við formennsku og gegndi því starfi í 23 ár.
Afmælisins verður minnst með einhverju móti á næstu vikum
en ekki er ákveðið endanlega hvemig.
Ný stjóm tók við stjómartaumum á aðalfundi, sem haldinn
var 28. mars síðastliðinn. Hún er þannig skipuð:
Elínborg Sigurðardóttir, Iðu, formaður,
Áslaug Jóhannesdóttir, Spóastöðum, ritari,
Ásta Skúladóttir, Sólveigarstöðum, gjaldkeri,
María Þórarinsdóttir, Fellskoti, meðstjómandi,
Ragnheiður Jónasdóttir, Reykholti, meðstjómandi.
Vara:
Elsa Marísdóttir, Asparlundi,
Oddný Jósefsdóttir, Brautarhóli.
Fulltrúi í rekstramefnd:
Anna S. Bjömsdóttir, Miklaholti.
Vara: Karitas Óskarsdóttir, Heiðmörk.
Fulltrúi í eigendanefnd:
Guðrún Guðmundsdóttir, Hlíðartúni.
Vara: Elsa Marísdóttir, Asparlundi.
Endurskoðendur:
Þuríður Sigurðardóttir, Selfossi,
Ingibjörg Bjamadóttir, Lyngási.
Veitinganefnd:
María Þórarinsdóttir, Fellskoti,
Ingibjörg Bjamadóttir, Lyngási,
Aðalbjörg Sigurjónsdóttir, Stóra-Fljóti,
Anna S. Bjömsdóttir, Miklaholti.
Vara: Perla Smáradóttir, Miðholti 3.
Litli Bergþór 7