Litli Bergþór - 01.04.1989, Blaðsíða 26
Þjórsármót
eftir Einar Gíslason frá Kjarnholtum
Égstingniðurpenna ogrifjaupp
ýmislegt sem mér er minnisstætt
fráæskuárummínum. Þákemur
fyrstfram í hugaminn íþróttamót
við Þjórsárbrú, sem haldið var á
tímabili árlega í júní á vegum
Héraðssambandsins Skarphéð-
ins. Þar hafði það ráð á svæði
sem var aðgirt og að ýmsu leyti
lagfært til samkomuhalds.
Smíðaður var stór pallur undir
Brekkunni, sem sýndar voru á
allskyns íþróttir og glímt var um
Skarphéðinsskjöldinn. Það var
oft spennandi að horfa á. Það er
víst flestum minnisstætt sem sáu
glímu þeirra nafnanna Páls á
Búrfelli ogPáls Rangæings (ljóta
Páls). Égheyrðihannekkiannað
nefndan. Það var löng og ströng
viðureign. Báðirkraftajötnarog
spöruðu ekki kraftana, en svo
fóru leikar að Páll á Búrfelli
sigraði. Þávarnúmikiðklappað
af Arnesingum. Þarna var af
ýmsum haldnar ræður. Mér er
sérstaklega minnistæð ræða sem
ÓlafurThorshélt þamaeittvorið.
Hafði aldrei séð hann áður eða
heyrt í honum. Það var
hressilegur hans málflutningur.
Svo var mikið sungið og síðan
var dansað af miklu fjöri á
pallinum og einnig man ég að
stundum var dansað í stóru tjaldi
sem var fyrir utan á, hjá Þjótanda
ogSigvaldifráGeithálsiátti. Það
var oft í Skeiðaréttum, en í því
var óslétt dansgólfið. Undir
miðnætti var samkomunni slitið
og farið að hugsa til heimferðar.
Það var stór flokkur manna og
hesta sem fór upp með Þjórsá, úr
fjórum hreppum. Þegar við
vorum komnir rétt inn fyrir
Þjótanda varð töf á hjá okkur,
því Ingimar á Fossi var orðinn
of drukkinn og tolldi ekki á
hestinum sem var fjörmikill og
honum erfiður. Sveinn frændi
minn á Hrafnkelsstöðum vildi
nú ekki láta hann verða eftir, þar
sem þetta var sveitungi hans og
kunningi. Svo hann biður mig
að reyna að koma honum á bak
fyrir framan sig og það tókst.
Brúnn var afburða hestur, fór
létt með þá báða upp í
Reykjafjárhúsin. Þar bjuggum
við um hann í garðanum og
höfðum hestana inni hjá honum
og lokuðum húsinu. Nú fór
mannskapurinn að tvístrast til
þriggjaátta. Biskupstungnafólk
úr Ytri-Tungu fór yfir á Iðu og
úr Gnúpverjahrepp fóru Þjórsár-
dalsveginn. Við sem vorum úr
Upp-Eystritungu vorum sam-
ferða Hreppafólki áleiðis að
Haukholtum. Þaðan fórum við
upp á Brúarhlöð og svo hver til
síns heimkynnis, glöð og ánægð
yfir góðri skemmtun. Fengum
við mjög gott veður og ég man
ekki eftir öðru í þessi skipti sem
ég fór og held að yfirleitt hafi
fylgtþessari útisamkomu sérstök
heppni hvað veðrið snertir.
Félögin urðu að leggj a fram þarna
mikla vinnu af ýmsu tagi. Ég
man eftir að ég var einu sinni í
miðasölunni ásamt fleirum. Þá
var Brynjólfur Melsteð gjaldkeri.
Hann slær upp á gríni og segir:
“Þú hefur sérstaka kvenhylli, þ ví
að ég sé að þær hafa sótt að þér
stelpurnar.” Það var mikil fúlga
sem kom upp úr vösunum mínum
en ekki man ég hvað það var
mikið að verðgildi. Þetta var
mjög vel sótt samkoma eða svo
var það í þessi skipti, sem ég var
þarna fyrir og upp úr 1920. Þá
voru engir bílar í förum og allt
ferðast á hestum. Má það heita
furðulegt hvað mikill fjöldi fólks
kom þama saman, bæði yngri og
eldri úr Rangárvallasýslu,
Arnessýslu og eitthvað úr
Skaftafellssýslu. Það voru
veitingar heima íÞjórsártúni, hjá
Ólafi og Guðríði og gekk það allt
fljótt og vel, en þar voru mikil
húsakynni.
/ Það hefur \
/ verið gaman á '
Þjórsármótunum
í gamla daga.
Allavegana á heimleiðinni.
En Sveinarnir brosa
svo breitt á spilakvöldunum
að ég held égfari þangað
\ ncesta vetur. /
o
Litli Bergþór 26