Litli Bergþór - 01.04.1989, Blaðsíða 19
H.S.K. þ i n g -frh.
67. héraðsþing H.S.K.
... skorar á Í.S.Í., U.M.F.Í.,
sérsambönd, héraðssambönd,
ungmenna- og íþróttafélög sem
standa fyrir keppnis- og
æfingaferðum í íþróttum, að sjá
til þess að bjór og annað áfengi
sé ekki haft um hönd allt frá
upphafi til loka ferða.
... beinir því til trimmnefndar að
standa fyrir sameiginlegum
Göngudegi H.S.K. sem haldinn
verði næsta sumar.
... skorar á boltaíþróttanefndir
að leggja áherslu á unglingastarf
og koma á fót mótum fyrir yngri
flokka innan H.S.K.
þakkar sveitar- og
sýslufélögum á sambands-
svæðinu fyrir góðan stuðning á
liðnu ári.
Einnig þakkar þingið öllum þeim
einstaklingum og fyrirtækjum
sem stutt hafa sambandið með
fjárframlögum og á annan hátt.
... beinir því iil forráðamanna
barna og unglinga að bjór verði
meðhöndlaður á heimilum sem
áfengi, en ekki sem svala-
drykkur.
... hveturungmennafélögin til að
sinna almenningsíþróttum meira
en verið hefur. Til dæmis með
því að skipuleggja leikfimi,
skokk, sund og annað trimm
(hreyfingu) fyrir þá sem ekki
stunda keppnisíþróttir.
... skorar á aðildarfélögin og
stjórn H.S.K. að koma af stað
umræðum um og vinna að auknu
foreldrastarfi.
... samþykkir að haldið verði
áfram á þeirri braut að haldin
verði ein kvöldvaka á hveijum
vetri í hvorri sýslu, Árnes- og
Rangárvallasýslu. Þar munu
viðkomandi ungmennafélög í
hvorri sýslu sjá um dagskrá fyrir
alla aldurshópa.
Veltvöngum - lyft öngum (rússnesk kosning???).
í þinglok var kosið í stjóm og 22
starfsnefndir. Björn B. Jónsson
Stöllum varaformaður, sem í
forföllum Guðmundar Jónssonar
Selfossi hefur starfað sem
formaður síðastliðna 4 mánuði,
var einróma kosinn formaður.
Með þeirri kosningu eignuðust
Tungnamenn formannsembættið
aftur eftir hátt í aldarfjórðung.
Þá lét Sigurður Greipsson af
störfumeftir44 ára formennsku.
Ekki veit ég hvort rétt er að óska
Birni velfarnaðar næstu 44 árin,
við skulum láta eitt ár nægja í
einu. En Björn, 44 ár er ekki svo
afleit tala, sem örugglega væri
gaman að glíma við, þú hefur
gott fordæmi eða þannig sko.
Til hamingju.
S.A.
Litli Bergþór 19