Litli Bergþór - 01.04.1989, Page 10
Lítil ferðasaga - frh.
Hrefnubúðir, sem ná austur að
Fúlukvísl. I þeim em lítilsháttar
skógarleifar. Það niður af er
Fróðárdalur, sem er mikið og
gott graslendi og nær að
Hvítárnesi. Nú var hestunum
gefið mikið hey og graskögglar
og við borðuðum og drukkum
allslags góðgæti. Þá var að ræða
hvemig skyldi haga ferðalagi
dagsinsáHveravelli, þvíþarvar
ákveðið að gista næstu nótt.
Ólafur tók að sér að keyra bílinn
og yngstu bömin sem ekki vom
hestfær. Nú fórég með öll hross
og mannsskap inn með Fúlukvísl
og inn úr Þjófadölum yfir
Þröskuld til Hveravalla. Þetta
var alveg dásamlegur dagur,
bjartviðri en óþarflega heitt.
Þetta er sérstaklega falleg leið.
Norðan við Hrefnubúðir sér yfir
á Leggjarbrjót og þar inn að
Hrútfelli. Heiðin vestan við
Fúlukvísl heitir Baldheiði, og nær
inn undir Hrútfell. Þar austur af
komaÞverbrekkur, gróðursælar
brekkur sem ná austur að
Fúlukvísl. Þarna inn með
Fúlukvísl er eiginlega^ hvergi
hægt að á með hesta. Á einum
stað er svokallað Þver-
brekknaver, sem í er lítil hagi en
nóg vatn. Þetta er eini staðurinn
sem hægt er að stoppa inn í
Þjófadali. Nú fer Drífa að fara í
töskur sínar og afhenda okkur
öllum matarpakka, sem í var
kjarnamatur og eitthvað höfðum
við til að renna niður með því.
Áfram var haldið inn með
Fúlukvísl og inn með Múlum,
sem em háar sandöldur beggja
megin Fúlukvíslar. Norðan við
ÞverbrekkuremSandfellin. Yfir
þetta gnæfa Hrútfell og
Langjökull og sjáum við inn til
Fögmhlíðar, sem er fjall sem
skerst út úr jöklinum og eru
jökulkvíslar beggja megin, en
fallegur gróður er í hlíðum þess.
Þaðan hafa oft komið fallegar og
vænarkinduráhaustin. Núemm
við að koma inn í Þjófadalina.
Norðan við gnæfir yfir hátt fjall
sem Rauðkollur heitir, hægra
megin Þjófafell og norður af því
Þröskuldur. Niður í dalnum er
sæluhús Ferðafélagsins, en þar
stigum við af baki en stoppuðum
lítið. Svo fómm við norður yfir
Þröskuld og áttum jafnvel von á
Ólafi á móti okkur þangað en
ekki sást til hans svo við héldum
áfram inn með Búrfjöllum,
riðum greitt því þarna er góður
reiðvegur. Þegar dregur frá
fjöllunum og girðingunni verður
fyrir okkur brött brekka upp á
háa gijóthæð og nú blasa við
Hveravellir. Ég reið nú niður í
sæluhús og tilkynnti Ólafi komu
okkar.
Nú rákum við hrossin í girðingu
og gáfum þeim grasköggla.
Þama var til sölu hey en okkur
leistnúekkiáþað. Viðprófuðum
að fá nokkra bagga sem við
hentum fyrir þá um morguninn,
en þeir gerðu því lítil skil. Við
fómm svo öll niður í sæluhús og
ég ásamt fleirum fómm í sund-
laugina strax. Svo var á borðum
mikill og góður matur eins og
alltaf og drykkur og vom því
gerð góð skil. Við fómm fljótt til
náða, því við sem vorum á
hestunum vorum lúin eftir
daginn, að minnsta kosti ég. Við
sváfum vel og áttum þarna góða
nótt. Við höfðum vístriðið greitt
því Ólafur sagði að við hefðum
verið tveimur tímum á undan
áætlun. Við vöknuðum snemma
morguns í sól og blíðu. Ég þurfti
að labba hér dálítið um og rifja
upp gamlar endurminningar frá
því að ég var hér starfsmaður í
sex sumur og síðan hef ég verið
hér á ferð á hverju sumri og þá
oftast gist hér. Svo það má nú
segjaaðégséhérhagavanur. Nú
fómm við að ná saman hestunum
og gefa þeim. Þá kom í ljós að
farið var undan nokkxum þeirra,
svo þeir urðu að fara að jáma,
Guðni og Ólafur. Ég labba
suður að Eyvindarhreysi sem er
hraunhóll sprunginn nokkurn
veginn eftir miðju en hleðsla í
miðju, svo það lítur út fyrir að
þama hafi verið mynduð tvö
hreysi, en ömurleg hefur íbúðin
verið, en stutt í Eyvindarhver að
sjóða kjötið. Héðan er margt að
sjá. Éf við horfum suður á
Kjalhraun sjáum við háa
strýtumyndaða hraunhóla sem
Áð í Fremstaveri á leið íHvítárnes.
Litli Bergþór 10