Litli Bergþór - 01.04.1989, Blaðsíða 16
Eftirlit... - frh
eftir kl. 8-9 á kvöldin og oft var
það sem ég kom ekki í náttstað
fyrr en kl. 2 að nóttu því stundum
seinkaði hópum. Til dæmis
einum um sólarhring, en það vom
Þingeyingar að koma úr
Amarfelli. Þeir ætluðu að gista
í Svartárbotnum. Þeir hrepptu
vont veður, villtust eitthvað í
þoku og veikindi töfðu ferð
þeirra. Eg fór í Kerlingarfjöll
um kvöldið að gá að þessum
hóp. Hann kom í Kerlingarfjöll
um miðja nóttina, hrakinn og
frekar illa til reika og kom svo í
S vartárbotna kvöldið eftir og átti
þar góða nótt.
Einstaka útlendingar komu við
hjá mér, en það voru aðallega
hjólreiðamenn. Stundumfórég
til byggða þegar lítið var um að
vera til mataraðdrátta og þvo af
mér rykið. Þá var gott að fara
innúr aftur seinnipart dags og
koma við í Sandárbragga og vita
hvort þar væru næturgestir. Þá
sá ég í sjónauka hvort einhverjir
væruíFremstaveri. Þaðsparaði
oft akstur að bregða sjón-
aukanum fyrir sig. Eg hafði það
fyrir reglu að tína drasl með
veginum í hverri ferð, svo sem
bjórdósirogannaðdrasl. Tvisvar
komst ég til Hveravalla með hey
tilsölu. HestamannafélagiðLogi
sá um útvegun heysins og
Sauðfjárveikiveijan seldi það. í
fyrri ferðinni fór ég með 50 bagga
og grasköggla að auki. í hitt
skiptið fór ég með 150 bagga
ásamt 50 böggum í Hvítámes og
Svartárbotna. Þetta var töluvert
hlass ávörubílinn. Stundumfór
ég í gönguferðir til að drepa
tímann, svo sem í Kórgilið og
Grjótárgljúfur. Einnig austur í
Fremstaver að gamla kofanum
og inn með Hvítá. Ég varð
undrandi að sjá allan þann gróður
sem þar var og ekki að sjá að um
ofbeit væri að ræða. Einn dagur
fór í að rífa hesthúsið við
Fossrófulækinn, sem þar var
fallið. Svo brenndi ég gamla
kofann, en hann var orðinn
alónýtur. Þar þarf að banna
tjaldstæði næsta sumar. Þarhélt
til hópur af útlendingum í hálfan
mánuð í tjöldum s.l. sumar. Ég
tel að gróðurinn þoli ekki slíkt.
Þá þarf að taka til athugunar
tjaldstæði í Hvítámesi. Tvisvar
bjargaði ég lömbum úr netunum
íLandgræðslugirðingunni,senni-
lega fyrir tilviljun eða kannski
var það vegna athygli. Stundum
varmaðureins einn oghægter
að vera, fjarri öllum í ofsaroki og
slagveðursrigninguíhjólhýsi. Þá
var gott að skríða í svefnpokann
og breiða upp fyrir höfuð og láta
Guð og lukkuna ráða. Ég tel að
umgengni hafi verið góð miðað
við allan þann fjölda ferðamanna
sem um Kjöl fór, en það var
ótrúlegur fjöldi og allt að 80%
útlendingar. Alls voru rúmar
1600 gistinætur á hestum þennan
tíma á þe s sum 4 stöðum hj á mér.
Þá er ótalið á Hveravöllum. Það
sjá allir að þessi hross taka mikið
af grasi til sinna þarfa annars
staðar en á gististöðum.
Að endingu vil ég þakka þeim
sem heimsóttu mig í
Bláfellskotið s.l. sumar. Einnig
vil ég þakka þeim sem nutu
fyrirgreiðslu hjá mér þetta fyrsta
sumar á fjöllum, þó svo til væru
undantekningar.
Síðasta daginn dró ég hjólhýsið
í Fremstaver og síðan í byggð.
Það var einn fallegasti dagurinn
í veru minni á fjöllum. Sólin
vermdi af öllu sínu afli og blanka-
logn. Þá kom þetta í huga mér:
Er að flytja afköldum Kili.
Kominti er í Fremstaver.
Nú er þetta búið í bili.
Birtist nœsta sumar hér.
M.febrúar 1989.
Litli Bergþór 16