Litli Bergþór - 01.04.1989, Side 18
Undirritaður átti þess kost að
sækja H.S.K. þingið sem nú var
haldið á Hvolsvelli. Þar sem ég
hafði ekki sótt þessa samkomu
síðastliðin 5-6 ár, var mjög
gaman að rifja upp gamlar minn-
ingar tengdar H.S.K. og hitta
gamla félaga, sem haldið hafa
áfram störfum á þessum
vettvangi.
Matmaður.
Ymsar hefðir hafa haldið sínum
sess á þinginu, svo sem kosning
„matmanns”í lokin, þ.e.a.s. þess
aðila, karls eða konu, sem þykir
hafa sýnt ótvíræða yfirburði í að
innbyrða þær veitingar, sem á
boðstólum eru. Viðkomandi er
síðan skyldur til að standa upp
og sýna vöxt sinn og þakka síðan
fyrir hönd hópsins fyrir þær
veitingar sem bornar hafa verið
fram. Siður sem vekur gjarnan
kátínu og lyftir þingfulltrúum
upp í erli þinghalds.
Sleifarkeponi.
Annar siður engu síður
merkilegur er svokölluð
„sleifarkeppni”. Sleifin er
verðlaunagripur sem fannst á
víðavangi á áningarstað við
Isafjarðardjúp fyrir um 23 árum.
Þá voru H.S.K. menn á leið á
þingí.S.í.áísafirði. Aðgömlum
sið var tekist á í þeim greinum
sem til féllu og með þeim
náttúrulegu áhöldum sem
fundust. Að lokum stóð
Hafsteinn Þorvaldsson uppi sem
sigurvegari og hampaði sleifinni
sem eins og áður sagði fannst á
staðnum. Síðanhefurveriðkeppt
um hana árlega með fáum
undantekningum, oftast á
þingumH.S.K. Sleifarhafi velur
þá keppendur úr hópi þingfulltrúa
og greinar við hæfi. Kennir þar
ýmissa grasa. Þetta er hin
ágætasta skemmtun og langlífi
sleifarinnar er dæmi um hve útlit
og verðgildi verðlaunagripa á oft
lítinn þátt í þeirri ánægju sem
skapast í kringum svona hefðir.
A þessu þingi afhenti Unnur
Stefánsdóttir, fyrrverandi
sleifarhafi, Valgerði Auðuns-
dóttur á Húsatóftum sleifina eftir
harða keppni valinkunna
þingkvenna.
Þetta var smá útúrdúr, en sagan
sem fylgir sleifinni er mikið lengi
og merkilegri en hér kemur fram
og væri gaman að fá hana í heild
einhvern tíma.
A þinginu núna var líka
bændaglíma unglinga 20 ára og
yngri. H.S.K. skoraði á
Björn B. Jónsson, núverandi for-
maður H.S.K., í rœðustól.
Til hægri situr Guðmundur Jóns■
son fráfarandi formaður.
landsúrvalið og fór með sigur af
hólmi. Greinilegt er að glíma á
auknum vinsældum að fagna í
héraðinu.
Á þinginu voru líka rædd alvar-
leg málefni, sem snerta störf og
framtíð H.S.K. Um 30 tillögur
voru samþykktar um hin ýmsu
málefni og eru hér nokkrar þeirra:
67. héraðsþing H.S.K. haldið á
Hvolsvelli 25.-26.febrúar 1989,
samþykkireftirfarandi skiptingu
á öllum lottótekjum sambandsins
næstu 2 ár:
l.Lottótekjur skiptast þannig:
I. 5% í Afreksmannasióð
H.S.K
II. 30% til H.S.K.
III. 65% tilaðildarfélagaH.S.K.
2. Skipting milli félaganna:
A. 15% jafnt milli allra
aðildarfélaganna.
B. 10% eftir fjölda mættra
fulltrúa á H.S.K. þingi
C. 15% eftir fjölda félaga, 16
ára og eldri.
D. 60%eftirfjöldafélaga7til
15 ára.
LitliBergþór 18