Litli Bergþór - 01.12.1989, Page 9
Frá íþróttanefnd.
Á aðalfundi Umf.Bisk, 29. apríl
sl. var gerð sú brey ting að kjósa
í iþróttanefnd foreldra bama í
sveitinni og gera þá um leið til-
raun til að efla foreldrastarf í
félaginu. Ég held að þessi til-
raun hafi tekist þokkalega hvað
varðar foreldra flestra þeirra
barna sem stunda íþróttir eitt-
hvað að ráði. En betur má ef
duga skal og væri gaman að
heyra álit fólks (foreldra) á
þessu máli. Svo við snúum
okkur að starfinu, þá kom
íþróttanefndin saman til skrafs
og ráðagerða 25. maí og voru
þá lagðar línurnar fyrir sumar-
starfið sem byrjaði með sumar-
æfingum (útiæfingum) hjá
þjálfaranum okkar Olafi Osk-
arssyni og síðar leikjanámskeiði
á vegum HSK sem var mjög vel
sótt. Oli þjálfari fór síðan í
sumarfrí íjúní en fékk Véstein
Hafsteinsson til að leysa sig af
á meðan. Vésteinn sá síðan um
undirbúning og framkvæmd
“17. júní mótsins”, sem haldið
var að kvöldi 15. júni og tókst
með ágætum og voru keppendur
fjölmargir.
1. júlí fórum við svo af stað
með stóran hóp keppenda á
íþróttahátfð HSK sem haldin
var að þessu sinni á Hvolsvelli.
Gist var í tjöldum, og vakti það
athygli hversu margir foreldrar
mættu með Tungnaliðinu sem
stóð sig líka mjög vel h vort sem
við foreldrarnir höfum nú átt
einhvern þátt í því eða ekki.
Þarna kom vel í ljós, sem við
vissum raunar fyrir, að við
eigum mjög gott og vaxandi
keppnisfólk í hinum ýmsu
greinum. Kjarninn úr þessu
liði okkar eru þeir krakkar sem
Gunnar Tómasson byrjaði að
þjálfa hér um árið og skilaði
síðan til Óla þjálfara, sem hefur
náð frábærum árangri með sínu
starfi. Enekkimágleymaþætti
Gunnars Tómassonar, sem
lagði mikið á sig (og gerir raunar
enn), og vil ég nota þetta
tækifæri og þakka honum
sérstaklega. En auðvitað eru
íþróttir fyrir alla, og sem betur
fer er hér fjöldi barna og
unglinga sem stunda íþróttir og
mætir vel á æfingar þó ekki
skili allt þetta unga fólk sér í
keppni. Ég er viss um að það
geta ekki mörg ungmenna- eða
íþróttafélög státað afjafn mikilli
þátttöku á íþróttaæfingum og
verið hefur hér í haust eða
tæplega helmingi allra nem-
enda í grunnskólanum. (Á
æfingu í Aratungu 24. október
sl. mættu 48 krakkar.)
En áfram með sumarstarfið.
Síðdegis 27. júlí fórum við svo
nokkrir foreldrar og krakkar
sem mætt höfðu á íþrótta-
æfingarnar í sumar í smá
skemmtiferð í Þrastaskóg. Þar
var farið í leiki, matur grillaður
sameiginlega, og áttum við þar
mjög góða kvöldstund saman
og allir sælir og ánægðir þegar
haldið var heim. Svona ferð
kostar lítinn undirbúning og er
vel þess virði aðendurtaka hana
síðar.
19. ágúst var svo 3j;t félaga
mótið, sem að þessu sinni var
haldið að Laugarvatni i
blíðskaparveðri. íikki gátum
við mætt þar með fullskipað lið
I Þrastaskógi. F.v.: Gunnar Tómasson, Björn B.
Jónsson og Olafur Oskarsson, þjálfari.
Litli - Bergþór 9