Litli Bergþór - 01.12.1989, Qupperneq 13
Nefndakjör
á haustfundi U.M.F.Bisk.
Haustfundur Loga.
Leiknefnd:
Hafdís Héðinsdóttir,
Anna Sigríður Snædal,
Margrét Sverrisdóttir.
Miðsvetrarvökunefnd:
Jóhanna Róbertsdóttir,
Sigríður J. Slgurfinnsdóttir,
Jón Þór Þórólfsson.
Skáknefnd:
Tómas Gr. Gunnarsson,
Garðar Þorfinnsson,
Haukur Harðarson.
Nafn Róberts Róbertssonar
féll út í síðasta blaði en hann
er í Eigendanefnd.
TAMNINGAR.
Tek hross í
tamningu og þjálfun.
Guðbjörn Þrastarson,
Birkiflöt, s. 68833
Hestamannafélagið Logi hélt
árlegan fund til að undirbúa
vetrarstarfið og fleira 27. nóv.
sl. Formaður félagsins, Ólafur
á Torfastöðum, sagði frá félags-
starfinuáliðnusumri. Komþar
m.a. fram að um 40 félagar sóttu
reiðnámskeið félagsins, sem
þau Rúna Einarsdóttir og
Eiríkur Guðmundsson kenndu
á. Þá sagði hann frá unglinga-
námskeiði, sem haldið var við
Hrísholt í sumar.
Kristján i Borgarholti sagði frá
síðasta hestaþingi. Gestir voru
á milli 160 og 170 og kom inn
fyrir aðgöngumiða og
mótsskrár kr. 81.400,-.
Á fundinum var samþykkt að
árgjald félagsmanna skyldi vera
á þessu ári kr. 1.000,- fyrir
fullorðna og kr. 500.- fyrir þá
sem eru yngri en 16 ára.
Kosið var í tvær nefndir.
Á rshátíðarnefnd:
Valur Lýðsson, formaður,
Loftur Jónasson,
Kristinn Antonsson,
Gunnar Ingvarsson og
Hólmfríður Óskarsdóttir.
Varamenn:
Kjartan Sveinsson og Kristján
Kristjánsson.
Reiðnámskeiðs- og firma-
keppninefnd:
Guðmundur Grétarsson,
formaður,
Brynjar Sigurðsson,
Jón Harry Njarðarson.
Varamaður:
Ágúst Sæland.
Aðfundi loknum sýndi Þorkell
Bjarnason hrossaræktarráðu-
nautur myndir frá sýningu
kynbótahrossa á fjórðungsmót i
á Kaldármelum árið 1988.
Einnig sagði hann frá ýmsu
varðandi kynbótastarfið og
undirbúning sýningar á
landsmóti hestamanna ;í
Vindheimamelum 3.-8. júlí
næsta sumar. Kom þar m.a.
fram að forskoðun fyrir
Suðurland verður á
Rangárbökkum 5.-9 júní.
A.K.
Gangavarsla og ræsting:
11/2 starf í Reykholtsskóla.
Ráðið verður í þessi störf frá og með 15. janúar 1990.
Umsóknarfrestur er til 7. janúar 1990 og skal þeim skilað skriflega á skrifstofu
Biskupstungnahrepps eða til skólastjóra Reykholtsskola.
Upplýsingar um störfin gefur skólastjóri í síma 68830 eða 6883 I.
i.illi Bergþói 1