Litli Bergþór - 01.12.1989, Qupperneq 25
Frá orfi...
fluttum við grjót á kerrunni til
aðfyllauppígrunninn. Einnig
kom fyrir að við systkinin fórum
á henni á Ungmennafélagsfund
suðuraðVatnsleysu. Fyrirslátt-
inn kom svo sláttuvél. Það var
greiðuvél, sem fest var neðan á
dráttarvélina svo greiðan var á
milli fram- og afturhjóla.
Öryggisbúnaður var þannig að
ef greiðan rakst í gekk vélin
svolftið aftur og strekkti á vír
sem dró kúplinguna niður. Um
þetta leyti var Jón bróðir minn
á búi foreldra minna. I
sláttarbyrjun fórhann íferðalag
á hestum norður yfir Kjöl. Var
ég heima á meðan og kom í
minn hlut að slá með traktorn-
um. Þegar Jón kom aftur fór ég
svo út að Ketilvöllum. Þar var
þá ekki komin nein dráttarvél,
og man ég hvað mér fannst
slátturinn ganga seint og vera
lítið skemmtilegur með hest-
unum. Sumarið eftir var svo
kominn traktor þar einnig.
Bráðlega komu svo múgavélar,
sem voru bæði notaðar til að
snúaograkasamanmeð. Múg-
arnir voru dregnir saman með
dráttarvélunum á svipaðan hátt
og áður með hestum og einnig
voru lanir oft dregnar heim með
þeim.
Ég fór að búa vorið 1960. Þá
var sú breyting orðin á tækni-
væðingunni að dísilvélar voru
orðnar algengar og hjólmúga-
vélarnar komnar til sögunnar.
Með þeim var bæði snúið og
rakað. Þær rökuðu miklu betur
en múgavélarnar sem fyrir voru
og sneru líklegaheldur skárlíka.
Fyrsta sumarið var ég með Ford-
son Major dráttarvél að láni og
keypti á hana sláttuvél og
fasttengda hjólmúgavél sem ég
nota enn til að raka utan með.
Arið eftir keypti ég svo fremur
litlalnternationaldísildráttarvél
og á hana ámoksturstæki, sem
voru ekki algeng þá.
Þegar leið fram á 7. áratuginn
fóru svo heytætlurnar að koma
og svo sláttuþyrlurnar. Þessar
vélar fékk ég 1967 og 1970.
Hvort tveggjavarmikilframför
frá fyrri snúningsvélum og
greiðusláttuvélum. Heybindi-
vél kaupi ég svo árið 1975.
Lengra er ég ekki kominn á
þessum vegi. Ef til vill á ég
eftir að kynnast af eigin raun
þriðju tegundinni af böggum.
Ég hef raunar gengið í gegnum
þrjú stig á ýmsum sviðum hey-
skapartækninnar á rúmum 40
árum. Ég hef slegið með orfi og
ljá, greiðusláttuvél og sláttu-
þyrlu, snúið með hrífu, gaffla-
snúningsvél og heyþyrlu. Rak-
að saman með hrífu, hesta-
rakstrarvél og hjólmúgavél.
Svo mætti áfram telja, en ég læt
hér staðar numið að sinni a.m.k.
Ef til vill vilja aðrir segja frá
sinni reynslu á þessu sviði eða
öðrum hliðstæðum.
A.K.
JARÐVARMIER GLIA
ÍSLANDS
Látið SET einqngrgn
vernda varmann
Eyravegi 43 - 800 Selfossi 0f
Box 83 - Sími 98-22700
Litli - Bergþór 25