Litli Bergþór - 01.04.1990, Blaðsíða 11
Umhverfis iörðina...
matreiða sinn eigin mat, oftast hrísgrjón með
sterkkryddaðri baunasósu eða grænmetissósu útá.
Vestrænar nautasteikur hafa þeir hvorki vit né
aðstæður til að halda ómenguðum af allskyns
óæskilegum bakteríum, fyrir utan það að þær
kosta morðfj ár (á indverska vísu). Hrísgijónaréttir
innfæddra kostuðu hinsvegar frá 10 aurum og
kannski uppí krónu á allra dýrustu stöðum .- Til-
fellið er, að maður fær allt aðra og betri tilfinningu
fyrir matnum þegar maður hefur hann svona á
milli fingranna! - Og fyrst eftir að við komum
aftur í vestræna siðmenningu í Ástralíu, fannst
manni hnífapör virkilega groddaleg og frá-
hrindandi.
En við vorum semsagt á Tourist Camp í Delhi.
Kofinn sem við bjuggum í var gluggalaus leirkofi,
en með rafmagnsperu og viftu, og möguleika á
læsingu. Hreinasti lúxuskofi fannst okkur, eftir að
hafa gist fyrstu nóttina í opnu tjaldi með 7 öðrum.
Þakinu, sem var léreftsdúkur, var haldið uppi af
bambusstöng í miðjum kofa. Svo heimilislegt!
En fyrir utan Tourist Camp var ég ekkert ýkja
hrifin af Delhi. Borgin er svo stór, að erfitt er að
komast milli staða nema í einhverskonar farartæki.
Algengastir voru þessir þríhjóla leigubílar,
svokallaðir "scooters", leigu-þríhjól með sæti fyrir
tvo farþega (rick-shaws) og hestakerrur. Rykið,
mannmergðin og fátæktin var yfirþyrmandi.
Horaðir dráttarklárar og heilagar kýr í umferðinni
og betlarar á hveiju götuhomi, meira og minna
bæklaðir. Betl er atvinnugrein í Indlandi eins og
hver önnur, og það sem gerir það mögulegt er sá
boðskapur hindútrúarinnar, að allir, semeru aflögu-
færir, eiga að gefa fátækum eitthvað á hverjum
degi, sjálfum sér til sáluhjálpar, svoþeir ínæstalífi
komist á æðra tilverustig. Hindúar trúa nefnilega
á sífelldar endurholdganir, og fer það eftir gerðum
manna hér á jörð hvort þeir endurfæðast betri eða
verri menn. Ef þeir endurfæðast alltaf sem betri
menn, náþeir endanlegu takmarki, hinu svokallaða
"Nirvana", sem er sameining við Brahma og alger
alsæla. - En maðurheyrði ljótar sögur af foreldrum
eða betlara-"alfonsum", sem limlestu böm til að
gera þau að arðvænlegri betlurum. - Svona getur
gróðafíknin leitt menn langt, og ólíklegt að það
fólk nái Nirvana í náinni framtíð!
Boðskapur hindútrúarinnar fannst mér annars
athygli sverður og fordómalau s. S amkvæmt honum
Ræktunarsambandið Ketilbjörn
LAUGARDAL, GRÍMSNESI OG GRAFNINGI.
Til leigu í smærri og stærri verk:
Ca.terpilla.rD6D PS 140 hö. jarðýta ’78
Komatsu PC 200 118 hö. beltagrafa ’87
Caterpillar D6D PS 140 hö. jarðýta ’82
Benz 4x6 2228 280 hö. vörubifreið ’82
Dráttarbifreið með vélaflutningavagni
Kílplógur til að ræsa tún og mýrar og
draga niður vatnslagnir og jarðstrengi.
Ræktunarsambandið Ketilbjöm
SÍMI 98-61189
Litli - Bergþór 11