Litli Bergþór - 01.04.1990, Blaðsíða 8
UMHVERFIS JÖRÐINA Á TVEIMUR ÁRUM
F
OG MANUÐI BETUR. (12. nóvember'81 til 14. desember'83.)
Lítil feröasaga í nokkrum þáttum,
eftir Geirþrúöi Sighvatsdóttur á Miöhúsum.
Það eru nú orðin 6-7 ár síðan ég kom heim úr hnattreisu minni, og
enn hef ég ekki komið því í verk að skrifa útdrátt úr ferðasögunni.
Svo þegar Sigga Jóna spurði mig um daginn, hvort ég væri til í að
skrifa ferðapistil í Litla-Begga, fannst mér það ekkert svo vitlaus
hugmynd.
Ferðaáráttan hefur alla tíð verið rík í Islendingum, og ferðasögur
vinsælar, svo ég vona að sveitungar mínir hafi eitthvað gaman af
þessum endurminningum, - allavega hafði ég gaman af því að rifja
upp viðburðaríka ferð.
Aðdragandinn
Hugmyndin aö þessu ferðalagi má segja aö hafi fæöst smámsaman meöan ég dvaldi viö
nám og vinnu í Danmörku á árunum 1976 - 1981. (Eöa var þaö kannski miklu fyrr, - eftir aö
ég sá bíómyndina "Umhverfis jöröina á 80 dögum" í Trípolíbíói, 7 ára gömul? - Og segi svo
enginn aö kvikmyndir hafi ekki áhrif á börn!)
Danir eru mikið fyrir aö ferðast og þar þykir ekkert tiltökumál aö stúdentartaki sér allt aö
ársleyfi frá námi til aö ferðast og víkka sjóndeildarhringinn, ef þeim veröur mál. Og maður
kynntist mörgum, sem höföu ferðast í ár hingaö eöa hálft ár þangað.
Ég smitaöist fljótlega, en byrjaöi rólega á stuttum sumarleyfisferöum. Fór í 2-3ggja vikna
gönguferð til Svíþjóöarog Noregs, og sólarferöirtil Grikklands og Júgóslavíu. Sumariö 1980
komst ég meö dönskum læknastúdentum í 6 vikna hópferö til Kína meö viðkomu í Thailandi,
Burma og Hong Kong. Og meö þeim kynnum mínum af Asíu, má segja aö ferðabakterían hafi
fyrst náö sérverulegaástrik. Þettavaráöuren Kínaopnaöi landamæri sín fyrir"venjulegum"
feröamönnum, svo hópurinn haföi þaö aö yfirlýstu markmiði aö skoöa heilbrigðiskerfið í Kína.
Viö undirbjuggum okkur í heilt ár meö lestri og hópvinnu um Kína, og eftir feröina urðum viö
aö skrifa skýrslu í bókarformi til aö skila Dansk-Kínverska vináttufélaginu og danska
læknastúdentafélaginu, sem skipulagði feröina. Þaö kostaöi auðvitað nokkurra mánaöa
helgarvinnu til viðbótar, en þaö var vel ómaksins viröi.
Meö í Kínaferöinni var íslensk hjúkrunarkona, Anna Halldórsdóttir, kunningjakona mín. Og
fljótleg eftir heimkomuna fórum viö aö tala um þaö, aö gaman væri aö komast aftur til Asíu og
helsttil Ástralíu og Nýja Sjálands líka. Guöbjörgu, vinkonu okkar Önnu, (sem sumir hér í sveit
kannast viö sem dýra-lækninn), leist vel á þessar hugmyndir okkar líka, og viö þrjár gáfum
okkurártil undirbúnings.
Ég dreif í að Ijúka lyfjafræðináminu, sem haföi dregist á langinn, þar sem ég þurfti aö vinna
meö námi fyrir Kínaferðinni. Þegar þaö var búiö, réöi ég mig í hálfs árs afleysingavinnu sem
lyfjafræðingur í smábænum Tonder á Suöur Jótlandi. Þénaöi og sparaði grimmt. Um haustið
'81 skrapp ég svo heim á Frón aö kveöja ættingja og vini, - og vinna nokkrar vikur til viðbótar
fyrir fargjaldinu heim og út aftur.
Litli - Bergþór 8
Geirþrúður.