Litli Bergþór - 01.12.1991, Page 20
hafi runnið út í á eða vatn en hins vegar hafi
vatn eða á runnið yfir Tungufellslögin. (Sbr.
Kristján Sæmundsson 1970).
LANDMÓTUN.
í hinum allþétta berggrunni við Hvítárgljúfur
hafa misgengi og sprungur haft mikil áhrif á
mótun þess auk jarðlagahallans og lítur gljúfrið
því út eins og krákustígur úr lofti. Undir lok
síðasta jökulskeiðs hörfaði meginjökullinn upp
í hálendisbrúnina í Biskupstungum og
Hrunamannahreppi vegna hlýinda á
Saurbæjarskeiði. En nýttkuldaskeiðgekkyfir
aðnýjufyrirum 11 .OOOárumoggekkjökullinn
fram að nýju. Við það hlóðust upp miklir
jökulgarðar sem raktir hafa verið þvert yfir
Suðurland frá Vatnsdalsfjalli í Fljótshlíð og
vesturtil Efstadalsfjalls í Laugardal. Nefnast
jökulgarðarnir Búðaröð og framrásarskeiðið
Búðaskeið. (Sbr. Guðmundur Kjartansson
1943,61). Þegar Búðarjökullinn hörfaði fyrir
fullt og allt myndaðist svokallað Búðarlón í
kvosinni norðan Sandöldu. Hin forna Hvítá
hafði tvö útföll úr því, hið vestra sem nú er
uppþornað og hið eystra sem hefur verið á
líkum stað og Hvítá rennur núna eða milli
Sandöldu og Eyðihlíðahöfða. Við höfðann
hefuráin kvíslast. Smáttogsmátthefureystra
útfallið náð yfirhöndinni og öll áin tekið að
renna í gljúfrinu innan Hamarsholts þar sem
Hvítá rennurenn. Þarsemallarþessarkvíslar
renna fram hafa breytingar verið flóknar og
tekið lengri tíma. Verður þeim lýst í næsta
kafla.
ALDUR ÁRFARVEGA HVÍTÁR.
Eftir að útfallið úr Búðarlóni var orðið eitt tók
Hvítá að renna í núverandi farvegi fyrir
tæplega 10.000 árum. Á myndinni má sjá alla
farvegi Hvítár. Elsti farvegurinn er merktur 1.
og hefur hann runnið töluvert austar en
núverandi farvegur. Nær hann allt að 1200 m
lengd þar sem áin er talin hafa fossað fram í
Hrúthaga. í þessum farvegi finnast öll
Heklulögin og er hann því eldri en 6200 ára
sem svarar til að á þessum 3800 árum hafi
gljúfrið lengst um 30 cm á ári. Svo fyrir um
6200 árum tók Hvítá að renna vestaren áður
við Gullfoss að Kálfhaga. Er hann kallaður
Kálfhagafarvegur. Við þetta lengdist gljúfrið
um 600-650 m á 2000 árum eða 30 cm á
ári.Áin breyttistsvotil núverandifarvegarfyrir
um 4000 árum. Tók hún þá að grafa það
gljúfur er stallurinn sem bílastæðið stendur á
er. í Ijósi öskulagarannsókna á stalli 200
metra sunnan við neðri fossbrúnina bendir
allt til þess að síðasti farvegurinn og síðustu
400-500 m gljúfursins séu yngri en 200 ára
eða yngri en 1766.
Gullfoss hefur
tekið litlum
breytingum síðustu
áratugina. Helst má
nefnaaðnorðurbrún
fossins hefurslævst
og rennurþarnúenn
meira vatn. Mjög
sennilegt verður að
teljast að mestu
breytingarnarverði í
flóðum en þá getur
vatnsmagn allt að
tuttugufaldast.
Litli - Bergþór 20