Litli Bergþór - 01.12.1993, Síða 3
Ritstj ómargrein
ísland er fallegt land og Biskupstungur falleg sveit. Þaö er engin spurning. Á hinn bóginn
er rétt aö velta fyrir sér annars vegar hvernig viö getum nýtt þessa fegurð og hins vegar
hvernig viö getum tryggt aö henni veröi ekki spillt.
Aö lifa í fögru umhverfi er aö sjálfsögöu mest viröi fyrir þá sem þar búa vegna þess aö
þeim líður vel og umhverfið hefur góö áhrif á þá. En þaö hefur líka á ýmsan hátt áhrif á
efnalega velferð íbúanna. Þjónusta viö ferðamenn og aöra þá er vilja njóta hér lengri eöa
skemmri dvalar er drjúg og vaxandi atvinnugrein hér í sveit. Flestir koma hingaö til aö sjá
og kynnast landslagi og náttúru.
Mestur hluti af framleiösluatvinnuvegum þessarar sveitar byggir einnig á náttúrufarinu og
á allt sitt undir því aö einhverjir vilji kaupa framleiösluna. Neytendur leggja sífellt meira upp
úr því aö þessar afuröir séu hreinar og lausar viö mengun. Fáir hafa aöstööu til aö
sannreyna aö svo sé en byggja mat sitt á þeirri ímynd sem umhverfið, sem framleitt er í,
hefur í hugum þeirra. ímynd þeirra fer fyrst og fremst eftir því hvernig umhverfiö lítur út.
Fallegt og snyrtilegt umhverfi gefur þá hugmynd að framleiösluvörurnar séu hreinar, hollar
og fallegar.
Ábyrgö íbúanna er því mikil aö spilla ekki umhverfinu meö hirðuleysi í umgengni.
Markmiö þarf aö vera aö búsetan hafi engin óæskileg áhrif í þessu efni. Lagöprúöar ær,
fjörleg hross og sællegar kýr í haga eru öllum náttúruunnendum til yndis, vel ræktaður
gróöurreitur gleður augu og reisulegar byggingar, sem falla vel aö umhverfinu og er vel við
haldið, eru til prýöi.
Ónýtir hlutir, mannvirkjaleifar í óhiröu og umbúðir á víöavangi spilla fegurö umhverfisins.
Þar sem athafnasemi ríkir, umferö og neysla er mikil fellur mikiö til af þess háttar hlutum.
Ekki er nóg aö gera kröfu til aö hver og einn gæti sín í þessum efnum. Flesta hendir alltaf
ööru hvoru aö gleyma sér og kasta umbúðum eöa ööru slíku þar sem þaö á ekki að vera.
Stundum getur líka komist upp í vana aö horfa á umhverfislýti án þess aö setja þau fyrir
sig. Einhverskonar samfélagsleg þjónusta þarf aö vera til staðar til aö bæta úr þar sem
ágallar eru. Mjög æskilegt er aö áhugamannasamtök leggi þar eitthvaö af mörkum, en
væntanlega veröur sveitarfélagiö alltaf aö greiða kostnaö. Þarna er líka mjög eölilegt
verkefni fyrir unglingavinnu, sem var hér í fyrsta sinn síðastliðið sumar.
Eftirlit og hreinsun meö vegum og í kringum opinberar byggingar liggur vel viö og er
einföld í framkvæmd. Ekki er víst aö sama sé aö segja þegar úrbóta er þörf á stööum sem
eru í eigu og undir yfirráðum einstaklinga. Þar verður aö gæta þess aö fólk líti ekki á tilboö
um aðstoð viö úrbætur sem ásökun eöa einhverskonar lítillækkun. Slíkt spillir alltaf árangri.
Sorphiröu þarf aö bæta. Mjög nauðsynlegt er aö fara aö flokka sorp og nýta lífrænan
úrgang. Koma þarf í veg fyrir brennslu á plasti viö lágan hita. Ástæöa er til aö fræöa fólk
skipulega um gildi góörar sorphirðu og hvernig það getur lagt sitt af mörkum til þess aö
úrgangur spilli ekki umhverfi.
Fyrsta skrefiö í þá átt aö gera Biskupstungur aö lýtalausu byggöarlagi er aö afla því
almennrar viöurkenningar aö þetta sé sameiginlegt hagsmunamál allra sem það byggja,
og úrbætur séu verkefni samfélagsins í góöu samstarfi viö íbúa þess.
A. K.
Litli - Bergþór 3