Litli Bergþór - 01.12.1993, Síða 15
Unglingavinna í Biskupstungum
Hópurinn leggur afstað í
siglingu á Hvítárvatni.
í sumar sem leið var krökkum á aldrinum 13-15
ára í fyrsta skipti gefinn kostur á unglingavinnu hér í
sveit. Verkstjórarnir Brynhildur og Erla fóru af staö
með 13 krakka og gekk samstarfið mjög vel. Þau
voru duglega til vinnu, mæting góð og
samkomulagið gott innan hópsins.
Verkefni voru fjölbreytt þó aðalvinnan hafi verið
sláttur á svæðum í eigu hreppsins, svo sem
íþróttavellinum og í kringum sundlaugina og
Aratungu. Málningarvinnan var líka heilmikil sem
og kantskurður að ógleymdri ruslatínslunni og
hreinsun á stéttum. Eins stóð fólki í sveitinni til
boða að fá þennan skemmtilega hóp til starfa heim
til sín við hin ýmsu tilfallandi störf, svo sem hinn
sívinsæla baggaburð, gróðursetningu trjáa, garð-
vinnu o.fl. Nokkrir bæir nýttu sér þetta og komu
krakkarnir m.a. við í Úthlíð, á Drumboddsstöðum og
Spóastöðum. Svo þurfti að slá og snyrta hjá
Heilsugæslustöðinni og Yleiningarverksmiðjunni og
kirkjugarðarnir fengu líka sína snyrtingu af unglinga-
höndum.
Einn dagur var tekinn í að hlúa að og gera það
sem þurfti í Rótarmannatorfunum góðu inná
hálendi.
Ekki var annað hægt en að verðlauna krakkana
fyrir góða frammistöðu og vel unnin störf og var því
farið með þau í eins dags skemmtiferð inná afrétt.
Þar fengu þau að upplifa hina frábæru Hvítárvatns-
siglingu Gústa og félaga, komu við í Árbúðum og
fengu "kók og prins" og að endingu var grillað í
Fremstaveri við mikinn fögnuð og var sannarlega
glatt á hjalla í þessari ferð.
Eins og allir vita er sjaldnast lognmolla þar sem
fleiri en tveir unglingar eru saman komnir og má því
Ijóst vera að oft á tíðum var mikið fjör í unglinga-
vinnunni. Má þar sérstaklega nefna svokallaðan
"málningarslag" sem dag einn endaði með vel
máluðu hári og fatnaði starfsmanna.
En krakkarnir eiga heiður skilinn fyrir hversu vel
tókst til í alla staði með frumraun unglingavinnunnar
hér í sveitinni og verður því að öllum líkindum
framhald á næsta sumar.
E.M.H.
Hjólaborð, innskotsborð og blómasúlur,
enn betra verð.
Jóladiskar, ný sending, lækkað verð.
Full búð af
gjafavöru.
Jólaflaskan
frá Holmegaard.
glæsilegri
Jólaórói frá
Georg Jensen.
Eyravegi 1 7
Selfossi.
Sími 22310
NÆG BÍLASTÆÐI. VERIÐ VELKOMIN
Sérverslun með gjafavörur
Litli - Bergþór 15