Skólablaðið - 01.04.1966, Side 29
177 -
á einu atkvæði fyrir Éns Þórissyni.
Er talið að atkvseði viðtakandi ritstjóra
hafi valdið þessum mun, þar eð hann
mun hafa óttazt, að efnt yrði til rit-
nefndarutilegu 1 stað ritnefndargléði á
vetri komanda. Maður þessi kvað nu
hafa 1 hyggju að bjóða sig fram til send-
ilsstarfs við slysavarnarblaðið.
Hinir fyrstu verða siðastir etc.
Sagt er, að oft ráði það úrslitum í
kosningum, hver mestu lofi, en litlu
skipti hverjar efndirnar verða. Ekki er
þessi regla þó einhlít, eins og sást 1
síðustu kosningum.
Kom þar jón Magnússon og hótaði
( lofaði ), að yrði hann inspector myndi
M. R. fá að annast útvarpsdagskrá nokk-
ur kvöld á vetri. Ekki virðist þó nem-
endum hafa litizt vel á hugmyndina, enda
myndi inspector væntanlega hafa haft
umsjón kvöldsins á hendi . Og féllu
bæði Jón og loforðið með. Einn var þó
sa maður, sem engu lofaði og ræddi
yfirleitt skólamál 1 torráðum gátum,
eins og vófrettin 1 Delfi er sögð hafa
komið boðum sínum til skila. Var það
einn hinna mýmörgu frambjóðenda 3.
bekkjar, Jens Þórisson. Vann þó Jens
glæsilegan sigur yfir næsta manni
hraustbyggðum og frfskum skátadreng.
Væri þetta athugandi fyrir frambjóð-
endur í næstu kosningum.
Engin loforð og engin félagsmálaræða,
og þér munuð inn fljóta.
Og verður ekki Jón M. orðinn kjör-
gengur í næstu Alþingiskosningum?
"Við viljum teppi. . . . ! "
Á margnefndum framboðsfundi á dög-
unum fengu nemendur nasasjón af sefj-
unaraðferðum Hitlers heitins við ræðu-
höld. Ungur maður, svartur á brún og
brá, sté í ræðustól og ræddi froðufell-
andi félagsmálin frá sjónarhorni væntan-
legs formanns Félagsheimilisnefndar.
Einkenndist framkoma piltsins af dýrs-
legum öskrum ( hvaptur ræöumanns er
mjög vel úr garði gerður með tilliti til
stórræða af þvá tagi ), höggum í ræðu-
stól skólans, sem mun minnast atburðar
þessa til Ragnaraka og stuttum hnitmið-
uðum setningum, sem hann endurtók
gjarnan tíú sinnum hverja. Viðstaddir
gerðu róm góðan að máli mannsins, sem
vonlegt er, þar eð hann kenndi fólki
mjög handhæga og óbrigðula aðferð til
að næla sér í góðgerðir í iTþöku á kostn-
að Félagsheimilisnefndar.
Fundarstjóri gagnrýndi atferli og
málsmeðferð mannsins, enda hafði sá
ekki hlýtt á erindi forsetans um ræðu-
mennsku, sem hann hélt fyrir nokkra
alþingismenn og fleiri í Kópavogi
skömmu áður.
On Her Majestyú Secret Service
Til forna táðkaðist oft, að ungir menn
og efniiegir, krefðu föður sinn farareyris
og sigldu á vit erlendra þjóða. Herjuðu
þeir þar sáðan, rændu bupeningi og konum,
og komu svo heim, er þeir höfðu getið sér
góðan orðstir.
Nú þekkist þetta ekki lengur, nema í
þvf formi, að menn leggi land uhdir fót
og í vopna stað beri þeir meðfædda glæsi-
mennsku ( sbr. BjarmalandsfCr Harðar
Erlingssonar s. 1. sumar ).
Mun einn ungur efnissveinn sigla til
Englands að vori. Er það fyrrv. inspector
Hallgrímur Snorrason, sem mun að sögn
fróðra manna hafa fengið kvikmyndatilboð
frá Rank og mun ætla að leika í nokkrum
myndum hjá þeim í sumar. Mun þá eiga
að gera mynd um Moise Tshombe í æsku
og er Hallgrími ætlað að leika Tshombe.
Þykir Hallgrímur þar valinn maður á rétt-
um stað. Þar næst á Hallgrímur að leika
í nokkrum James Bond myndum, en sem
kunnugt er, er Hallgrímur einn mesti á-
hugamaður landsins um viðgang James
Bond og viðureign hans við ljótu kallana
í austri. Verst er þó, að þegar hefur
verið skipað í hlutverk kappans sjálfs, svo
að Hallgrímur mun :i fyrstunni méstmegn-
is eiga að leika útsendara GMER3H.
En stendur ekki einhvers staðar,
mjór er mikils visir, kannski lendir
Hallgrímur þá í einhverju kynbombu-
hlutverkinu áður en lýkur.