Skólablaðið - 01.04.1966, Blaðsíða 48
FRUMVARP
til laga um blað, er nefnist Menntaskólablaðið
( Komi sem sérstakur kafli \ Lög um störf embættismanna Skólafélagsins )
( Greinarnúmer til bráöabirgða )
1. grein
Nemendur Menntaskólans i Reykjavík skulu árlega gefa át blað, er þjóni
þeim tilgangi að kynna skólann og starfsemi þá, er þar fer fram.
Blaðið ber nafnið Menntaskólablaðið.
2. grein
Ritstjórn Menntaskólablaðsins skal skipuð fimm nemendum. Formaður
ritstjórnar nefnist ritstjóri, og hefur hann yfirumsjón með útgáfu blaðsins.
Einn ritstjórnarmanna skal hafa á hendi fjárreiður blaðsins.
3. grein
Menntaskólablaðið skal koma út um miðjan marzmánuð. Ritstjórn safnar
og velur efni blaðsins. Komi til ágreinings, ræður einfaldur meiri hluti.
4. grein
Ritstjóri Menntaskólablaðsins skal velja því ábyrgðarmann.
5. grein
Menntaskólablaðið skal boðið til sölu í bóksölum og á almannafæri.
Leitast skal við að standa straum af kostnaði við útgáfuna með sölu blaðs-
ins og auglýsinga. Atvikist svo, að blaðið verði fjárvana, skal leita
liðsinnis rektors.
6. grein
Ritstjórn Menntaskólablaðsins skal skylt að varðveita 20 eintök af hverjum
árgangi blaðsins.
7. grein
Til þess skal mælzt, að rektor varðveiti sjóð Menntaskólablaðsins, þá er rit-
stjórn starfar ekki.
8. grein
Kosning ritstjórnarmanna Menntaskólablaðsins fer fram samkvæmt lögum um
kosningu embættismanna Skólafélagsins. Sá, sem flest atkvæði hlýtur, er rit-
stjóri. Fjórir næstu frambjóðendur að atkvæðatölu eiga ásamt ritstjóra sæti
í ritstjórn Menntaskólablaðsins.