Skólablaðið - 01.04.1966, Síða 52
200 -
anum, bæði hvað snertir framsögn
og látbragð. Ingadfs missti aldrei
tökin og mér er tjáð, að hún hafi
hert þau að mun á síðari sýningum.
Þökk sé henni.
Katrín Fjeldsted stóð sig með
prýði. Svo rammt kvað að túlkun
hennar á fröken F'rism, að með-
fæddur étti við kennslukonur vaknaði
1 mér eftir langan svefn. Jomfrúar-
ástleitni fröken Prisms fékk mig
einnig til að roðna upp \ hársrætur,
sem er meira en unnt er ao segja
um doktor theol. Chasuble, sem
virtist í upphafi ekki gefa viðleitni
Prisms neinn gaum. Að öðru leyti
gekk Jéni Erni Marinóssyni vel
þetta kvöld og sýndi einna mest
öryggi leikenda.
Pétur Gunnarsson og Gísli Bene-
diktsson höfðu báðir geðþekka fram-
komu. Áðurnefnt samtals Lanes og húsbónda hans í fyrsta þætti innti Pétur
síha parta vel og skilmerkilega af hendi, enda margreyndur að góðum leik.
Merriman getur sofið rólegur hvað Gúsla viðkemur.
fyri]
Sviðið var afar vel gert, enda höfundur þess,-Björn Björnsson, listamaður
hinn bezti. Útisenan var hinum nokkuð síðri, en innisenurnar stóðu verkum fag-
lærðra srzt að baki. Menntaskólanemar minnast Björns með þakklæti fyrir hans
ómetandi störf undanfarin ár.
Leikstjórn hefi ég ekki vit á sem slikri, enda alltaf hættuspil fyrir ungmenni
að gagnrýna fagmenn.
Leikskrá var dágóð, enda efnismikil eins og ritstjóri hennar.
Svo þakka ég leiknefnd bráðskemmtilega sýningu og ef einhver er ósammála
þvú, sem sagt hefur verið, vil ég hugga hann með einkunnarorðum Herranætur :
"Cucullus non facit monacum".
April 1966
jóhannes Björnsson