Litli Bergþór - 01.12.1994, Side 5
Slakkabœr, veitingastaður og
dýragarður í Laugarási.
byggða, en tvílemba slapp í Þjófadölum. Hún
náðist síðar og reyndist norðan úr Vatnsdal og var
sett í geymslu í hesthúsi norðan við Hveravelli og
sóttu Húnvetningar hana þangað. Seinna fannst
tvílemba hér úr sveit innan við Sandá.
Fé kom vænt af fjalli og úr heimahögum.
Garðar Þorfinnsson á Spóastöðum var
gæslumaður á Biskupstungnaafrétti í sumar. Hann
innheimti girðingagjald fyrir um 2500 hross, seldi um
800 bagga af heyi fyrir Hestamannafélagið Loga og
gistinætur voru 757, 33 við Sandá, 280 í
Fremstaveri, 356 í Árbúðum og 58 í Svartárbotnum.
Heildarvelta var rúmlega 1.070 þúsund krónur.
Veiðifélag Hvítárvatns kostaði byggingu baðhúss
við Árbúðir.
Á vegum Landgræðslunnar voru í haust byggðar
stíflur við Sandvatn til að hækka vatnsborðið í því til
að taka fyrir sandfok úr eyrum.
Allmörg umferðarskilti hafa verið sett upp við
vegamót hér í sveit í sumar og leiðir merktar.
Austasti hluti Tjarnarvegar, sem tengist
Biskupstungnabraut við Vatnsleysu, var hækkaður
og nýr vegur lagður vestan við Vatnsleysubæina.
Vatn hefur verið lagt úr kaldavatnsveitunni, sem á
upptök í landi Austurhlíðar, annars vegar að Heiði
og í sumarhúsin Faxabúðir í landi Heiðar og hins
vegar að Arnarholti, Kjaransstöðum og Bóli.
Unnar Þór Böðvarsson, skólastjóri
Reykholtsskóla, fór til starfa við skólastjórn á
Hvolsvelli og var Kristinn Bárðarson ráðinn í hans
stað.
Jón B. Sigfússon, matreiðslumeistari, var ráðinn
húsvörður í Aratungu í haust. Kona hans og tvö
börn þeirra flytja hingað um næstu áramót. í
Aratungu er starfrækt mötuneyti fyrir nemendur og
starfsfólk Reykholtsskóla og nokkra aðra
kostgangara. Jón stóð fyrir fagnaði fyrsta vetrardag
í samstarfi við Félag harmonikkuunnenda í
Reykjavík. Þar var kvöldverður og dans við
harmonikkuleik.
Um miðjan september hvarf ítalskur ferðamaður
við Gullfoss. Talið er að hann hafi fallið í fossinn.
Björn Ingimundarson frá Reykjavöllum andaðist í
Svíþjóð í ágúst. Hann var jarðaður á Torfastöðum.
A. K.
Frá SVD. Bisk.
Á síðasta ári var farið í yngstu bekki skólans
með endurskinsmerki og börnin frædd um
slysavarnir.
Nokkur útköll hafa verið t.d. leit að jeppamönnum
sem voru með bilaðan bíl inn við Fjórðungsöldu og
höfðu þeir gengið þaðan í átt til byggða. Þeir
fundust með aðstoð þyrlu við Fremri-Skúta. Stuttu
síðar voru menn í viðbragðsstöðu vegna manns á
vélsleða við Fjórðungsöldu sem skilaði sér að
Hveravöllum af sjálfsdáðum.
13.september var útkall vegna manns sem fallið
hafði í Gullfoss. Leitað var við fossinn og niður eftir
Hvítá í 14 daga en án árangurs.
Fyrstu daga rjúpnaveiðitímans var hafin leit að
manni sem var við veiðar við Skjaldbreið en hann
komst af sjálfsdáðum til byggða. Viku seinna var
hafin leit að öðrum á sama stað og komst hann
einnig sjálfur til byggða. 12 tímum síðar var kölluð út
leit að manni er týnst hafði úr gleðskap á
Nesjavöllum.
Oft hefur verið beðið um aðstoð vegna bilaðra
eða vanbúinna bíla.
Sveitin hefur staðið fyrir fjölmörgum æfingum og
námskeiðum. M.a. skyndihjálp I og II og akstur
björgunar- og sjúkrabifreiða.
Sundlaugarverðir voru á litlu námskeiði um
björgun úr vatni og voru látnir gera æfingar í því
sambandi. Mættu flestir verðir í Tungunum en þó
ekki allir.
Fjáraflanir hafa verið allnokkrar t.d. sala á
sokkum, jólastjörnum og gjöf á gjöf um 1. helgina í
aðventunni.
Einnig er það páskaliljusala að ógleymdri
dósasöfnun en söfnunarstaðir eru víða í sveitinni.
Við þökkum þær móttökur sem við höfum fengið
og vonumst eftir að áframhald verði þar á.
Rabbfundir eru 1. fimmtudag í hverjum mánuði
og eru allir velkomnir.
Stjórnin.
Litli - Bergþór 5